HÚSASJÁ

Álalækur 13

01-0201 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

103 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

1980 m²

Lóð

Garður

Svalir

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



6 dagar á sölu

sell

63.700.000 kr

621.463 kr/m²

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali, sími 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Álalæk 13, íb. 201, Selfossi. Virkilega björt og skemmtileg fjögurra herbergja, 102,5 fm endaíbúð á 2.hæð í 11 íbúða fjölbýlishúsi byggðu af ÞG verk.  Íbúðin er með 19 fm suðursvölum og er laus til afhendingar við kaupsamning. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum og er þvottahús innan íbúðar.  Sameignin er einkar snyrtileg.  Geymsla sem fylgir íbúðinni er rúmgóð.

Eignin er alls 102,5 fm

Íbúðin er 93,8 fm, virkilega björt og snyrtileg. Auk þess er 8,7 fm geymsla á jarðhæð. Svalirnar snúa í suður og eru 19 fm.

Harðparket er á gólfum nema á votrýmum þar sem eru flísar.

Forstofa með skáp.

Úr stofu er útgengt út á stórar 19 fm svalir.  Svalirnar eru með góðu útsýni.  svalagólf er timburklætt.

Eldhús er með hvítri höldulausri innréttingu.  Innfeld uppþvottavél og ísskápur/frystir fylgja með.

Þrjú svefnherbergi með góðum skápum.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.  Fín hvít innrétting.  Upphengt salerni.  Handklæðaofn. Sturtuklefi.

Gólf í þvottahúsi er flísalagt

Húsið:

Húsið er byggt af ÞG verk og samanstendur af 11 íbúðum.  Að utan er það klætt að utan með álklæðningu í bland við timburklæðningu.   Ál/tré gluggar.   Snyrtileg sameign.  Stigagangur flísalagður og stigi teppalagður.  Svalagangar eru með glerlokun.

Sameign:

Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð.

Lóð er snyrtileg og frágengin.  Bílastæði er malbikuð. Lóð er þökulögð. Búið er að setja upp hleðslupósta á vegum húsfélags. Virkt og gott húsfélag er í fjölbýlishúsinu.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Kort af Álalækur 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð