HÚSASJÁ

Reykjastræti 5

05-0510 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

147 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2019

Byggingarár

54996 m²

Lóð

Lyfta

Bílskúr

Þvottahús



548 dagar á sölu

sell

214.900.000 kr

729.464 kr/m²

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 kynna: Nýleg glæsileg 4ra herbergja íbúð á 5. hæð í einu vandaðasta húsi sem hefur verið byggt á Íslandi. Nánar tiltekið Reykjastræti 5 við Austurhöfn.

Einkabílastæði fylgir með í lokuðum bílakjallara og möguleiki er að kaupa annað stæðið með. Lyfta gengur beint inní íbúðina. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, sér þvottahús og sérgeymsla í kjallara.Tvennar svalir. Frábær eign á frábærum stað.

Eignin er seld með fyrirvara

Nánari lýsing:

Lyftan er aðgangsstýrð og einnig gengur stigahús í íbúðina. Gólfhiti er í íbúðinni sem er með vönduðu parketi.

Lyftan opnast beint inn í íbúðina i rúmgóða forstofu með fataskápum. Gili innréttingar með breiðari spón en vani er.

Gestasnyrting með innréttingu. Flísalagt

Sér þvottahús með innréttingu og skolvaski. Flísalagt.

Stofa og eldhús í opnu rými þar sem svalir eru í sitthvorum endanum.

Gólfsíðir gluggar eru í alrými sem veita mikla náttúrulega birtu. Afar vönduð tæki í eldhúsi frá Miele og Liebherr.

Svefnherbergin eru samtals þrjú.

Öll herbergin eru með fataskápum. Tvö svefnherbergi eru með aðliggjandi baðherbergjum sem kalla má hjónasvítur.

Eitt herbergi er notað sem skrifstofa og er með rennihurð.

Lokaður sameiginlegur garður er á 2. hæðinni.  Garðurinn er sólríkur og skjólsæll með fallegum gróðri,bekkjum og lýsingu. Garðurinn býður upp á einstaka upplifun í borgarmyndinni. Sérgeymsla í kjallara að stærðinni 12,4 fermetrar.

Tvær hjóla- og vagnageymslur eru í sameign. Mynddyrasími fyrir utan útidyr. Anddyri er læst óviðkomandi umferð.

Leyfi er fyrir gæludýrahaldi í húsinu.

Allar innréttingar eru einstaklega vandaðar og sérsmíðaðar á Ítalíu af Gili Creations. Aukin lofthæð. Vönduð tæki eru í eldhúsi frá Miele og Liebherr. Blöndunartæki frá Dornbracht. Kvartssteinn er á borðum og marmarasteinflísar á stórri eldhúseyju. Helluborð í eyju. Savant snjallheimiliskerfi frá Nordic Smart Spaces með vandaðri ljósa- og gardínustýringu eykur þægindi. Virkt hljóðkerfi í völdum rýmum, lagt fyrir í öllum rýmum. Gegnheilt eikarparket er á allri íbúðinni. Í votrýmum eru flísar. Fullkomið loftræstikerfi með hljóðdeyfðum loftrásum.

Ath. að tvær myndir sýna Reykjavík edition Spa.

Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfulla hönnun á algjörlega einstökum stað við Reykjavíkurhöfn. Arkitektar hússins eru T. ark. Arkitektar. Stutt er í einstaka menningu og mannlíf borgarinnar. Á jarðhæð hússins er Hafnartorg gallery með úrval veitingastaða og verslana, auk Þulu sýningarrýmis. Reykjavík Edition Hótel og Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús eru staðsett við hlið hússins, á lifandi höfn Austurbakkans við Hörputorg.

Eignin býður upp á beinan aðgang að Reykjavík Edition fimm stjörnu hóteli, þar sem fyrsta flokks þjónusta, einstök aðstaða og veitingastaðir eru í hæsta gæðaflokki. Meðlimaáskrift fyrir íbúa Austurhafnar í fullbúna heilsulind með gufubaði, sauna, nuddpotti og fjölbreyttu úrvali meðferða, auk líkamsræktar og slökunarsvæðis. Innangengt er úr bílakjallara á Reykjavík Edition og í Hörpu.

Allar nánari upplýsingar gefur:

Jason Kristin Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 eða jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Reykjastræti 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42