Bryggjugata 6
05-0301 · 101 Reykjavík



506 dagar á sölu
390.000.000 kr
1.856.259 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega vönduð og rúmgóð 210 fm íbúð á þriðju hæð á þessum eftirsótta stað við Austurhöfn. Einstakt ítalskt handverk er í sérsmíðuðum innréttingum frá Gili Creations og eru öll eldhústæki af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Beint aðgengi úr lyftu inn í íbúð. Glæsilegt útsýni yfir höfnina og gluggar á þrjá vegu. Sérmerkt stæði fylgir eigninni í lokaðri, aðgangsstýrðri bílageymslu.
Bókið skoðun: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
**Sækja söluyfirlit**
Stórar stofur með miklu útsýni og útgengi á rúmgóðar, inndregnar vestursvalir. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti eru í allri íbúðinni. Glæsileg eldhúsið er opið við stofur með sérsmíðuðum innréttingum og veglegri, marmaraklæddri eyju með spanhelluborði og innbyggðri viftu. Kvartsborðplata er við eldhúsvask. Tveir ofnar eru í vinnuhæð, búrskápur og innbyggður, tvöfaldur ísskápur frá Liebherr. Vegleg hjónasvíta er á svefnherbergisgangi með fataherbergi og baðherbergi. Annað svefnherbergi er staðsett á ganginum með sér baðherbergi. Auðvelt væri að bæta þriðja svefnherberginu við inn af stofu. Rúmgott fataherbergi er inn af holi með innbyggðum skápum og snyrtingu. Gott þvottahús er staðsett á svefnherbergisgangi og rúmgóð geymsla er í kjallara.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / lilja@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


































