HÚSASJÁ

Geirsgata 17

05-0208 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

49 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

54996 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



247 dagar á sölu

sell

72.900.000 kr

1.475.709 kr/m²

Háborg fasteignasala og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu, glæsiega íbúð við Geirsgötu 17 101 Reykjavík. Á 2.hæð í þessu vinsæla húsi sem eitt af kennileitum borgarinnar og vakið athygli fyrir glæsilega hönnun og vandað efnisval.

Nánar um íbúðina. Komið inn í forstofu með góðum fataskápum. Eldhús og stofa er opið rými með gólfsíðum gluggum. Alrýmið er bjart og rúmgott og með útgengi út á suður svalir með svalarlokun og viðarklæðningu. Eldhúsið er sérsmíðað efnisval er amerísk hnota og vönduð tæki. Eldhúsið er L laga hannað af Gili Creations, Baðherbergið er glæsilegt og vandað til efnisval, fallegar ljósar flísar, góð snyrtiaðstaða og innfeld blöndunartækji. Á baði er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergið er með innfelldri lýsingu, einnig með gólfsíðum gluggum og góðum fataskáum. Eigninni fylgir geymsla í kjallara.Um er að ræða sérlega glæsilega tveggja herbergja íbúð í miðbæ Reykjavíkur við Austurhöfnina. Aðgengi að bílakjallara.  LAUS STRAX

Sérstaða þessar íbúðar er:Aukin lofthæð í íbúðumGólfhiti og hágæða loftskiptikerfiSérhannaðar ítalskar innréttingar frá Gili creationsVönduð eldhústækjalína MieleKvartz borðplataHússtjórnarkerfi frá Lutron og SavantSnjallheimiliskerfi frá Nordic Smart SpacesInnfelld og óbein lýsing einkennir lýsingarhönnunSérhannaður garður til einkanota fyrir íbúaÞjónusta í boði frá Reykjavík EditionSvalalokunVið hönnun íbúðarinnar var lögð áherlsa á þægindi og notagildi ásamt því að láta hvert rými njóta sín í stíl við heildarhönnun íbúðarinnar.

Húsfélag: Í húsinu er virkt húsfélag. Mánaðargjöld eru kr. 28.515-. Húseigendatrygging innifalin í húsgjöldum.Á aðafundi 2025 var stjórn falið að athuga með útskipti á ljosum í bílageymslu og lagfæringar á lyftu. Einnig er stjórn að skoða búnað til að laga slæmt símsamband á jarðhæð. Hússjóður stendur vel.

Bílakjallari: undir húsinu er bílakjallari sem hægt er að fá aðgang að, ýmist með mánaðar áskrift eða skammtíma leigu.

Hverfið: Geirsgata 17 er glæsileg bygging sem stendur við Austurhöfn á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Skjólgóður garður til einkanota fyrir íbúa er í miðju byggingakjarnans. Í næsta nágrenni er fjölbreytt flóra matsölustaða. Á neðri hæð Austurhafnar er Hafnartorg mathöll og Gallery. Einnig er örstutt að ganga yfir í Edition hótelið sem skartar glæsilegum veitingastöðum og börum. Tónlistar og menningarhúsið Harpa er í næsta nágrenni ásamt verslunum og menningu í miðborg Reykjavíkur.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Geirsgata 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21