HÚSASJÁ

Efstaleiti 15

01-0108 · 103 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

43 m²

Stærð

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

6808 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



32 dagar á sölu

sell

49.500.000 kr

1.148.492 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Vel staðsetta og bjarta 43.1 fm studíóíbúð að Efstaleiti 15, 103 Reykjavík sem er í göngufæri við alla helstu þjónustu, útivistarsvæði og gönguleiðir í Fossvogsdalnum. Fallegur innigarður í sameigninni.

Nánari lýsing:

Anddyri með harðparketi á gólfi.

Stofa með harðparketi á gólfi og útgengi á pall sem snýr í norður.

Eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Harðparket á gólfi, falleg innrétting frá Nobilia í Þýskalandi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, falleg innrétting, walk-in sturta. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla er staðsett í kjallara og er rúmlega 9 fm að stærð.

Hjóla-, vagna- og kerrugeymsla er staðsett í kjallara.

*Þvottavél og þurrkari fylgja með í kaupum - húsgögn geta einnig fylgt*

**Eignin er í útleigu – möguleiki á að yfirtaka leigusamning.**

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Efstaleiti 15

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu