HÚSASJÁ

Gaddstaðir 44

01-0101 · 851 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

227 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2020

Byggingarár

15472 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



332 dagar á sölu

sell

124.900.000 kr

550.463 kr/m²

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaka eign í einkasölu;

Gaddastaðir 44 er reisulegt, nýlegt einbýlishús á eignarlandi rétt utan við Hellu - í grónu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika svo sem varðandi hestahald og aðra útivist. Svæðið er skipulagt sem íbúðabyggð sunnan Suðarlandsvegar. Stórglæsilegt og fullbúið hús öllum nútímaþægindum.

Húsið er 226,9 fm. skv. fasteignaskrá HMS, á tveimur hæðum með góðri lofthæð og gluggasetningu sem tryggir að íbúar njóti stórbrotins útsýnis til fjalla svo sem Heklu og Eyjafjallajökuls .

Nánari lýsing;

Komið er inn í stórt og opið hol og forstofu sem tengir aðrar vistarverur, þaðan liggur afar veglegur og fallegur harðviðarstigi upp á efri hæðina.

Í opnu og björtu alrými með glugga á 3 vegu er stórt og vel búið eldhús með miklu skápaplássi og bekkplássi bæði til að vinna við, föndra og sitja við.

Stofan er rúmgoð og rúmar vel bæði setustofu og borðstofu í opnu flæði. Gengið er út frá stofu á stóra og veglega verönd sem snýr í suður en lóðin snýr að mestu í suð-austur.

Á neðri hæðinni eru tvö góð herbergi;

1 herbergi (13,7 fm) með lausum fataskáp (fylgir ekki).

2. herbergi (12,8 fm) með lausum fataskápum (fylgja ekki).

Stórt og veglegt þvottahús er með vel búið innréttingum og góðu skápaplássi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vaskur í innréttingu með borði umhverfis. Inngangur frá bílastæði hússins er beint inn í þvottahúsið.

Baðherbergi er rúmgott, flísalagt með stórum "walk in" sturtuklefa,  upphengdu salarni, handlaug í innréttingu og góðum, opnanlegum glugga.

Geymsla er á hæðinni (4,4 fm).

Á efri hæðinni er komið inn í opið sjónvarpshol /fjölskyldurými undir súð, meðfram súðinni er geymslupláss og nýtileg rými og öðru megin sér innréttað leiksvæði fyrir börnin.

Hjónaherbergi er mjög stórt (23 fm) með fataherbergi með opnum skápum og nýtanlegu rými undir súðinni beggja vegna, gott birtuflæði.

Barnaherbergið er sömuleiðis mjög rúmgott (20,6 fm) en það er hugsað þannig að auðvelt sé að skipta því upp í tvö rými, gluggasetning tekur mið af því. Herbergið er afar skemmtilega innréttað sem draumaveröld barnsins.

Baðherbergi á efri hæðinni er flísalagt með upphengdu salerni og handlaug, lagnir eru til staðar fyrir baðkar, þakgluggi er opnanlegur.

Húsið er hannað með þarfir nútíma fölskyldunnar í huga, stór og opin rými, hlýlegt og praktískt í umgengni.  Við byggingu hússins var horft vel til þátta sem nýta varma og tryggja jafna hitun svo sem með þreföldu gleri í gluggum, einangrun og gólfhita í gólfum neðri hæðar.

Góð aðkoma er að húsinu, stórt bílastæði fyrir framan húsið og hellulagt til hliðar við það við inngang á norðurhlið hússins.

Húsið stendur á stórri lóð sem stendur hátt í landslaginu með miklu víðsýni. Skipulagið bíður upp á að byggja þar fleiri mannvirki svo sem sem bílskúr, gestahús og skemmu.

Sveitafélagið veitir hefðbundna þjónustu eins og fyrir þéttbýli m.a. sorphirðu.

Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Gaddstaðir 44

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð