HÚSASJÁ

Dalbrekka 2

01-0402 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

60 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

2019

Byggingarár

4377 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla



118 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

996.672 kr/m²

Virkilega falleg 2ja herbergja íbúð á 4. hæð með stæði í bílakjallara við Dalbrekku 2 í Kópavogi.

Eignin skiptist þannig að íbúð er 56,8 fm og geymsla 3,3 fm, alls 60,1 fm skv. fasteignaskrá.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengt út á góðar útsýnissvalir. Parket á gólfi

Eldhús með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi. Ofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.

Svefnherbergi er með góðum fataskáp og parketi á gólfi.

Fallegt baðherbergi með flísum í hólf og gólf, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Opnanlegur gluggi, innrétting með vaski og ágætu skúffuplássi.

Innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherberginu.

Geymsla er 3,3 fm að stærð og staðsett í kjallara. Mikil lofthæð í geymslu.

Svalir snúa í vestur í átt að Öskjuhlíð með fallegu útsýni, samþykki eru fyrir svalalokun.

Bílastæði er sérmerkt í lokaðri bílageymslu, nr. bílastæðis B146. Grunnkerfi er fyrir hleðslustöðvar í bílakjallara.

* Eignin er í útleigu til 01.08.2026, möguleiki að yfirtaka leigusamning.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu. Bónusverslun í sömu götu ásamt veitingastöðum, bakaríi og apótek í næsta nágrenni.

Stutt í stofnbraut og skemmtilegar gönguleiði í Fossvogsdal, Öskjuhlíð og Nauthólsvík.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Dalbrekka 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð