HÚSASJÁ

Mosagata 1

01-0303 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

120 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2017

Byggingarár

2964 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

97.800.000 kr

818.410 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Björt, falleg og afar vel skipulögð 4 herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í fallegu lyftuhúsi á vinsælum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ. Frábær staðsetning nálægt allri helstu þjónustu. Eignin liggur hátt í Urriðaholtinu og er útsýnið sérlega glæsilegt til suðurs og vesturs meðal annars yfir Heiðmörk og Snæfellsjökul.

** 3 rúmgóð svefnherbergi

** Góð staðsetning

** Glæsilegt útsýni

** Yfirbyggðar svalir

Nánari upplýsingar veita:

Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 119,5m2, þar af geymsla 7,1m2.

Eignin skiptist í anddyri, hol, stofu/borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í sameign.

Nánari lýsing

Sérinngangur af svölum.

Anddyri er með fataskáp. Flísar á gólfi.

Hol sem hægt væri nýta fyrir skrifborðsaðstöðu eða bæta við skápum. Parket á gólfi.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með útgengi á 11,8m2 yfirbyggðar svalir. Glæsilegt útsýni. Parket á gólfi.

Eldhús er með fallegri viðarinnréttingu og hvítum efri skápum, eyju með góðu skúffuplássi, bakaraofn, spanhelluborð, veggháf og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.

Baðherbergi er með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Flísar í hólf og gólf.

Svefnherbergi I er 9m2 með fataskáp. Parket á gólfi.

Svefnherbergi II er 9m2 með fataskáp. Parket á gólfi.

Svefnherbergi III er 14,5m2 með góðum fataskápum. Parket á gólfi.

Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gott hillupláss. Flísar á gólfi.

Geymsla 7,1m2 er í sameign á 1.hæð

Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.

Mosagata 1, íbúð merkt 0303, er staðsett ofarlega í Urriðaholti í Garðabæ sem er umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Mosagata 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu