HÚSASJÁ

Lynggata 2

01-0206 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

101 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2017

Byggingarár

2591 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla



23 dagar á sölu

sell

87.900.000 kr

872.890 kr/m²

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Lynggötu 2, Garðabæ íbúð 0206 fnr. 236-6394 - ENDAÍBÚÐ

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 100,7 fm og er íbúðarhluti 93,6 fm og geymsla í kjallara 7,1fm. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er einnig bílakjallara. Merkt stæði er í bílakjallara.  Skráð byggingarár hússins er 2017 og er húsið 4 hæða lyftuhús og er íbúðin á 2. hæð hússins.  Hægt er að fara yfir íbúðina hér að neðan í þrívíddarhlekk og svo er gólfteikning sem sýnir fyrirkomulag íbúðar þar sem ljósmyndir af eigninni eru.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D

Nánari lýsing:

Aðkoma:  Snyrtileg sameign er í húsinu. Bílastæði fyrir aftan húsið.

Forstofa: Flísar á gólfi. Góður fataskápur sem nær til lofts. Milli forstofu og baðherbergis er svo rúmgóður geymsluskápur með skolvaski.

Stofa/borðstofa: Stórt rými þar sem stofa/borðstofa og eldhús eru. Parket á gólfi. Stórir gluggar sem gefa góða birtu í rýmið. Útgengt á stórar svalir sem snúa til suðurs.

Eldhús: Parket á gólfi. Góð hvít og brún innrétting. Bakstursofn í vinnuhæð. Helluborð með viftu yfir. Innbyggð uppþvottavél sem og kæli/frystiskápur sem fylgja.

Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi. Stór brúnn fataskápur með 6 einingum. Fallegt útsýni til norðurs.

Barnaherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi. Brúnn fataskápur með tveimur einingum. Fallegt útsýni til norðurs.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góður sturtuklefi með glerþili. Upphengt salerni. Innrétting með handlaug. Handklæðaofn. Þvottavél og þurrkari eru staðsett í baðherbergi.

Geymslur: Læst geymsla í kjallara sem er skráð 7,1 fm og svo er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Bílastæði: Merkt bílastæði í bílakjallara og er rafhleðslustöð við stæðið.

Lynggata 2 er falleg og vel skipulögð endaíbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli í Urriðaholti í Garðabær. Vandaðar innréttingar eru í íbúðinni og allur frágangur til fyrirmyndar. Fallegt útsýni og lítill þéttleiki við næstu hús.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Lynggata 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23