HÚSASJÁ

Malarskarð 8

01-0201 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

234 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2022

Byggingarár

912 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla



672 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

597.608 kr/m²

Ólafía Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili eignamiðlun kynna í einkasölu:  Glæsilegt, fjölskylduvænt, 2ja hæða parhús við Malarskarð 8 í nýju hverfi í Skarðshlíð, Hafnarfirði.

HÚSIÐ ER ALLS 234,1m2 Á TVEIMUR HÆÐUM OG ÞAR AF ER CA. 26,7m2  BÍLSKÚR Á EFRI HÆÐ OG CA. 50m2 SÉR ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI.

Húsið verður afhent fullklárað að utan, með grófjafnaðri lóð og fokhelt að hluta.  Að innan er efri hæð ásamt hluta neðri hæðar fokhleld. Í hluta neðri hæðar er sér íbúðareining ca. 50m2 sem afhendist fullkláruð án gólfefna utan baðherbergis sem er flísalagt. Á NEÐRI HÆÐ ER SÉR ÍBÚÐAREINING MEÐ SÉR INNGANGI. ÍBÚÐIN ER FULLBÚIN ÁN GÓLFEFNA EFRI HÆÐ OG HLUTI NEÐRI HÆÐAR ER Á FOKHELDISSTIGIMÖGULEGT ER AÐ FÁ HÚSIÐ AFHENT TILBÚIÐ TIL INNRÉTTINGARVinsamlegast bókið skoðun í síma: 898 8242 eða á ola@logheimili.is

Ath. þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar.

Skipting eignar samkvæmt teikningu: stærðir rýma miðast við innanmál.

Heildar stærð eignarinnar er 234,1m2 og þar af er sér íbúð á neðri hæð ca. 50m2 og bílskúr 26,7m2.

EFRI HÆÐ: samanstendur af bílskúr, forstofu , herbergi, baðherbergi, og alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.  Útgengt er úr borðstofu út á suðursvalir.  Aðal inngangur hússins er á norður hlið.

Bílskúr: 26,7m2 innbyggður bílskúr.

Forstofa: úr forstofu er aðgengi að bílskúr. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir fatahirslu í forstofu.

Herbergi: eitt herbergi á hæðinni og þar er gert ráð fyrir fatahirslu.

Baðherbergi: þar sem gert er ráð fyrir sturtu, salerni og innréttingu með handlaug.

Alrými:  stofa, borðstofa og opið eldhús eru í opnu björtu rými.  Gert er ráð fyrir veglegri eldhúsinnréttingu með eyju.

NEÐRI HÆÐ: Frá efri hæð er innangengt í hluta og/eða alla neðri hæðina.

Sjónvarpshol: rúmgott sjónvarpshol í miðju rými.

Baðherbergi:  baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir innréttingu, salerni og baðaðstöðu.

Þvottarými: rúmgott þvotta / geymslurými þar sem gert er ráð fyrir innréttingu með vaski, þurrkara og þvottavél.

Svefnherbergi:  tvö rúmgóð herbergi þar sem gert er ráð fyrir fatahirslum.

Í HLUTA NEÐRI HÆÐAR ER SÉR ÍBÚÐAREINING MEÐ SÉR INNGANGI.

HLUTI SÉR ÍBÚÐAR Á NEÐRI HÆÐ: íbúðin afhendist fullkláruð án gólfefna nema á baðherbergi sem er flísalagt.

Baðherbergi:  baðherbergi með innréttingu með handlaug, salerni, sturtuklefa og rými fyrir þvottavél.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.

Svefnherbergi: eitt rúmgott svefnherbergi með fataskápum.

Alrými: Stofa: stofa með út gengi út á suður lóð. Eldhús: opið eldhús með innréttingu og eyju með áföstu matborði.  Eldhúsið er hluti af opnu rými inn í stofu.

Inngangur:  sér inngangur í forstofu.

Geymsla: lítil aflokuð geymsla undir stiga.

Nánari upplýsingar veitir Ólafía lgf. í síma 898 8242 eða á ola@logheimili.is

Kort af Malarskarð 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð