Kolagata 2
07-0312 · 101 Reykjavík



114 dagar á sölu
107.900.000 kr
1.276.923 kr/m²
Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - kynna: Glæsilegt íbúð á þriðju hæð við Kolagötu 2, Rvk. Íbúðin er tveggja herbergja, með geymslu í sameign. Möguleiki er á að leigja stæði í bílakjallara. Aukin lofthæð og einstaklega vel staðsett í miðbænum.
Eignin skiptist í: Anddyri, gang, svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi.
Íbúðin er með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og vínkæli, með parketi á gólfum fyrir utan flísar í votrýmum.
Forstofa með fataskáp.
Eldhúsið er með innréttingu frá Noblessa. Borðplata og klæðning er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens.
Stofan er í alrými með eldhúsi með útgengi á svalir, falleg útsýni úr stofu yfir miðbæinn.
Baðherbergi er flísalagt með flísum á bæði gólf og veggi. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg sturta með blöndunartækjum frá Vola. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergið er með góðum fataskápum sem eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð.
Svefnherbergið er með sprautulökkuðum fataskáp með innvols frá Innval af vandaðri gerð.
Sérgeymsla í kjallara.
Íbúðin er laus til afhendingar og skal þriggja mánaða trygging liggja fyrir við gerð leigusamnings.
Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.
Innihurðar eru sprautulakkaðar mattar í sama lit og veggir, framleiddar hjá HBH smíðaverkstæði.
Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum.
Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir





















