HÚSASJÁ

Jaðarleiti 2

01-0303 · 103 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

106 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2018

Byggingarár

5191 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



206 dagar á sölu

sell

87.500.000 kr

827.815 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulögð og björt 105,7 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Jaðarleiti 2 í Reykjavík.

Eignin er afar vel skipulögð og björt með gólfsíðum gluggum og gólfhita. Íbúðin skiptist í forstofu með skápum, tvö rúmgóð svefnherbergi, sérþvottahús, rúmgott baðherbergi, bjarta stofu og borðstofu í opnu rými ásamt eldhúsi með góðu skápaplássi. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara.

-  Björt íbúð með gólfsíðum gluggum og gólfhita

-  Vinsæl staðsetning með fjölbreyttri þjónustu í göngufæri

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. 775-4000 / palli@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskápum.

Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum.

Baðherbergi er rúmgott með upphengdu klósetti, opinni sturtu með gleri, baðinnréttingu með skúffueiningu og vask ásamt efri speglaskáp. Flísar á gólfi og hluta veggjar.

Stofa/Borðstofa er björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum í borðstofu.

Eldhúsið er með fallegri ljósri innréttingu frá Nobilia með góðu skápa- og vinnuplássi. Innbyggð tæki og ofn í vinnuhæð.

Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, ljósri innréttingu frá Nobilia, vinnuvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skápum.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 9 fm.

Sameign: Tvær sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur.

Gólfefni: Parket á forstofu, stofu, eldhúsi og herbergjum. Flísar á baðherbergi og í þvottahúsi.

Innréttingar: Allar innréttingar frá þýska framleiðandanum Nobilia sem GKS hefur umboð fyrir á Íslandi.

Umhverfi og staðsetning

Jaðarleiti er vinsælt og vel staðsett hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, verslanir, skólar á öllum stigum og góðar almenningssamgöngur. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu og stutt er í helstu stofnbrautir borgarinnar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Jaðarleiti 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30
Jaðarleiti 2, 01-0303 | Húsasjá