HÚSASJÁ

Holtsvegur 47

01-0203 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

105 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2018

Byggingarár

2026 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



525 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

712.655 kr/m²

Domusnova kynnir:

Nýleg 2ja-4ra herbergja íbúð að Holtsvegi 47 í Garðabær (Urriðaholti).

Íbúðin er í rólegri götu og er á 2.h. í þessu nýlega lyftuhúsi, en útgengt er á einkaafnotaflöt, hellulagt svæði beint úr stofu.

Íbúðin er skráð 2ja herbergja en í henni eru tvö gluggalaus rými sem eru merkt sem ein geymsla á teikningu en nýtast sem t.d. skrifstofa og geymsla eða eftir þörfum hvers og eins.

Góð íbúð á vinsælum stað. Húsið var byggt 2018. Birt stærð eignarinnar er 105,1fm.

Þegar komið er inní íbúðina er salerni til vinstri, og gott svefnherbergi með skápum þar á eftir. Annað vinnurýmið (geymsla) er á hægri hönd, þegar komið er inn, en framan við það er fataskápur. Hitt vinnurýmið er í beinu framhaldi hægra megin og alrými stofu og eldhúss beint af augum og er útgengt á hellulagða verönd úr rýminu. Góð tæki og innréttingar eru í eldhúshlutanum. Mjög góð nýting pláss er í íbúðinni.

Alrými stofu og eldhúss er bjart og opið með góðum innréttingum og tækjum, parket á gólfi, útgengt á svalir/verönd sem er einkaafnotaflötur.

Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél er rúmgott með opnu sturturými, flísum í hólf og gólf og fallegum innréttingum, handklæðaofn og upphengt vatnssalerni.

Svefnherbergi með góðum skáp, parket á gólfi.

Anddyri með fataskáp, parket á gólfi.

Tvö gluggalaus vinnu- eða leikrými með parketi á gólfi sem hægt er að nýta sem vinnuaðstöð, leikherbergi eða það sem hentar hverjum og einum, viftur sjá um loftskipti í rýmunum.

Falleg eign, með marga nýtingarmöguleika, á góðum stað í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt í alla helstu þjónustu; skóla, leikskóla, verslanir, golfvelli og útivistarsvæði auk þess sem stutt er í stofnbrautir. Í sameign, sem lítur vel út, er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veita:

Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 891 8660 / vilborg@domusnova.is

Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Holtsvegur 47

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð