HÚSASJÁ

Álalind 2A

01-0401 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

110 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2017

Byggingarár

5595 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð



15 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

906.534 kr/m²

Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og Lind fasteignasala  kynna afar fallega og bjarta 4.herbergja íbúð í fallegu fjölbýli við Álalind 2a í Kópavogi, byggðu árið 2017. Eigninni fylgir sér bílastæði í björtum og snyrtilegum bílakjallara. Íbúðin er sjarmerandi, björt og með tvennum svölum til suð-vesturs. Gengið er út á svalir úr stofu annars vegar og hjónaherbergi hins vegar. Sameign er sérstaklega  snyrtileg og njóta allir íbúar sameiginlegs þakgarðs á þaki hússins með fallegu útsýni. Eignin verður  afhent við kaupsamning.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Álalind í næsta nágrenni við Smáralind og alla verslun og þjónustu.

Nánari lýsing.

Stigapallur með teppi á gólfum og snyrtilega frágengin.

Forstofa með harðparketi (QuickStep) á gólfi, rúmgóð með fataskápum.

Eldhús með harðparketi á gólfi. Spanhelluborð á eldhúseyju með innbyggðum gufugleypi. Innbyggð uppþvottavél og kæliskápur. Bakaraofn í vinnuhæð. Eldhúsinnrétting frá HTH. Stór gluggi sem gefur fallega birtu í rýmið.

Stofan tengist eldhúsi, með harðparketi á gólfi og útgengi á svalir til suð-vesturs.

Tvö rúmgóð barnaherbergi með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.

Hjónaherbergið er mjög rúmgott með aukinni lofthæð. Harðparketi á gólfi, stórir fataskápar  og svalir  til vesturs.

Baðherbergi með flísum á gólfi. Flísalögð sturta, innrétting við vask og skápar. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Stæði í bílakjallara er rúmgott og vel staðsett m.t.t. inngangs að stigagangi.

Hverfið- Íbúðin er í nýlegu og glæsilegu, fimm hæða, 25 íbúða fjölbýlishúsi að Álalind 2A í nýlegu  íbúðahverfi - Glaðheimum í hjarta Kópavogs. Í næsta nágrenni eru skólar, leikskólar, íþróttaaðstaða, sundlaug, verslanir og verslunarmiðstöðin Smáralind. Þá er svæðið einnig vel tengt aðalgatnakerfi höfuðborgarsvæðisins.

Allar upplýsingar um eignina veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 / gudrun@fastlind.is

Kort af Álalind 2A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð