HÚSASJÁ

Arnarhlíð 1

01-0404 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

113 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2018

Byggingarár

3080 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



347 dagar á sölu

sell

117.900.000 kr

1.046.140 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun kynnir:

ARNARHLÍÐ 1 – GLÆSILEG OG RÚMGÓÐ ÞRIGGJA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ MEÐ TVENNUM SVÖLUM OG HJÓNAVÍTU

Stílhrein, björt og einstaklega vel skipulögð 112,7 fm þriggja herbergja íbúð í vönduðu lyftuhúsi við Arnarhlíð 1 í Reykjavík. Um er að ræða endaíbúð með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og mikilli birtu. Íbúðin er með tvennum svölum, þar af 26,4 fm svalir út frá stofu. Tvö baðherbergi, þar af hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi.

✅ Endaíbúð með aukinni lofthæð og glæsilegum gluggum

✅ Tvennar svalir – þar af 26,4 fm út frá stofu

✅ Tvö baðherbergi – annað innaf hjónaherbergi

✅ Hjónaherbergi með fataherbergi og sérbaði

✅ Eldhús með steinborðplötu, tvöföldum ofni og innbyggðum tækjum

✅ Þvottahús og geymsla innan íbúðar auk sérgeymslu í kjallara

✅ Fjögur sameiginleg svæðis-svalarrými – með grilli og húsgögnum

✅ Glæsilegt fjölbýlishús byggt 2018 – lyfta í húsi

Eignin skiptist í hol, alrými með eldhúsi, storfu og borðstofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvotthús og geymslu í kjallara.

Birt stærð íbúðar er 112,7 fm og geymslu er 3,0 fm, samtals 115,7 fm.

Nánari lýsing

Anddyri og hol: Bjart rými með parketi á gólfi og fataskáp.

Alrými: Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými með útgengi á 26,4 fm svalir.

Eldhús: Hvít innrétting með góðu skáparými og skápum sem ná upp í loft. Steinborðplötur, tvöfaldur ofn (bakaraofn og örbylgjuofn), keramik helluborð, lofthengdur gufugleypir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.

Svefnherbergi I (hjónasvíta): Rúmgott með fataherbergi og sérbaðherbergi innaf. Gengið út á svalir í vestur.

Svefnherbergi II: Rúmgott, bjart og með fataskáp.

Baðherbergi I: Flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, upphengdu salerni, baðinnréttingu og handklæðaofni.

Baðherbergi II (innaf hjónasvítu): Flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, upphengdu salerni, baðinnréttingu og handklæðaofni.

Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með innréttingu og vaski, hilllur á vegg.

Geymsla:  Sérgeymsla í kjallara.

Svalir og sameign

Útgengi úr stofu á rúmgóðar 26,4 fm svalir í suður, einnig eru svalir út frá hjónaherbergi í vestur. Fernar sameiginlegar svalir, tvær stórar svalir sem snúa í vestur með garðhúsgögnum og grilli, einar svalir sem snúa í austur og einar í norður.

Um húsið

Fjölbýlishúsið var byggt 2018 og er staðsteypt á fjórum hæðum með lyftu. Klætt með álklæðningu og lerkitimbri á inndregnum svæðum.

Staðsetning

Arnarhlíð 1 stendur við Valsreitinn í Reykjavík – í nálægð við íþróttasvæði við Hlíðarenda, skóla, miðbæ og fjölbreytta þjónustu.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:

Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Arnarhlíð 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu