Seljaland 20
05-0101 · 800 Selfossi



4 dagar á sölu
63.900.000 kr
724.490 kr/m²
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Seljaland 20. Gott fjögurra herbergja parhús 88,2 fm byggt 2016. Sólpallur og garðhús/geymsla í suðvestur garði. Hellulögð verönd framan við hús.
Innra skipulag. Opin forstofa með fataskáp, Þrjú góð svefnherbergi, tvö þeirra með fataskápum.
Eldhús og stofa í opnu rými. Á gólfum er harðparket. Flísalagt baðherbergi, innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu. Flísalagt þvottahús/geymsla með innréttingu.
Gólfhiti með stýringum er í húsinu. (Eitt herbergjanna er notað sem geymsla í dag).
Eins og áður sagði er hellulögð verönd framan við hús ásamt skjólveggjum og blómakassar. Möl í innkeyrslu. Góður sólpallur til suðvesturs. Garðhús/geymsla, blómakassar, og lítil grasflöt.
Snyrtileg eign sem er laus til afhendingar í vor.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið skoðun
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















