HÚSASJÁ

Vefarastræti 18

01-0106 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

111 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2017

Byggingarár

5222 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



390 dagar á sölu

sell

81.000.000 kr

731.707 kr/m²

** Opið hús þriðjudaginn 20. janúar frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 -  Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og mjög falleg 110,7 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með útgengi út á verönd (27 m2 sérafnotareitur) í suðurátt ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu við Vefarastræti 18 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 110,7 m2, þar af íbúð 99,5 m2 og geymsla 11,2 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni og komin hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Gott skipulag, fallegar innréttingar frá Axis og innfelld lýsing hönnuð af Lumex. Frábær staðsetning rétt við grunn- og leikskóla, Helgafellsskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í strætóstoppistöð.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:

Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Hol er með harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum og harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 2  er með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu.

Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhús, stofa og borðstofa eru í rúmgóðu og björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting með eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur/frystiskápur, blástursofn, helluborð og háfur. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd og sérafnotaflöt í suðurátt.

Sérgeymsla er í kjallara, skráð 11,2 m2.

Bílastæði í bílageymslu merkt B29 fylgir eigninni. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er í stæðinu.

Eigninni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu í kjallara.

Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak. Innsteypt innfelld lýsing undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. Rafmagnsopnanir í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa- og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar.

Verð kr. 81.000.000,-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Vefarastræti 18

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð