HÚSASJÁ

Holtsvegur 43

01-0202 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
50 myndir

148 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2018

Byggingarár

1511 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



100 dagar á sölu

sell

118.900.000 kr

805.010 kr/m²

Gimli fasteignasala kynnir: Holtsvegur 43, 210 Garðabær. Rúmgóð 130,9 fm íbúð auk 16,8 fm geymslu, alls 147,7 fm. Tvö baðherbergi, þar af annað í hjónasvítu, 24 fm yfirbyggðar svalir. Aukin lofthæð. Stæði í bílageymslu með rafmagnshleðslustöð.

Íbúðin er vel staðsett í húsinu og engir veggir liggja að annarri eign.

Eignin Holtsvegur 43 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-9229, birt stærð 147,7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Bókið skoðun hjá Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 7737126, eða elinrosa@gimli.is og/eða Halla Unnur Helgadóttir í síma 6594044 eða halla@gimli.is

NÁNARI LÝSING:

Forstofa: Komið er inn í forstofu sem er opin að gangi. Í forstofunni eru rúmgóðir fataskápar og flísar á gólfi. Af gangi er annars vegar aðkoma að dagrýmum og hins vegar svefnálmu.

Alrými: er mjög rúmgott, það samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhússinnrétting með ljósri viðaráferð, eyja með helluborði og aðstöðu fyrir barstóla, innbyggð uppþvottavél og bakarofn í vinnuhæð. Á borðum er kvarts.

Svalir: Útgengt er úr stofurými á stórar 24 fm yfirbyggðar svalir(ekki í fm tölu), steypt gólf, rafmagnsofn.

Hjónasvíta: rúmgott herbergi, fataherbergi með opnum skápum og glugga, baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, vaskur í innréttingu og speglaskápur, sturta og vegghengt salerni, handklæðaofn.

Svefnherbergi #2: Mjög stórt herbergi, með fjórföldum skáp og skóskáp.

Baðherbergi: aðalbaðherbergið er rúmgott, flísalagt gólf og hluti veggja, stór sturta, vegghengt salerni, vaskur í innréttingu, speglaskápur fyrir ofan, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ofan á skápaeiningum. Gluggi og handklæðaofn.

Á öllum gólfum öðrum en að framan greinir er hlýlegt vínylparket.

Geymsla/tómstundarrými: 16,8 fm með glugga, á gólfi er sama parket og á íbúð, geymsluskápar meðfram vegg.

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í bílageymslu, rafmagnshleðslustöð tilbúin fyrir rafmagnsbílinn. Sameiginleg, aflokuð dekkjageymsla er inn af bílageymslunni.

Sameign: Snyrtileg og vel um gengin, myndavéladyrasími. Hjóla- og vagnageymsla með aðkomu að utan. Á lóð er tunnuskýli.

Niðurlag: Eignin er einstaklega vel staðsett á fjölskylduvænum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ þar sem stutt er í góðar gönguleiðir og golfvelli og aðra útivist. Stutt í alla helstu þjónustu og verslanir í Kauptúni.

Nánari upplýsingar veitir: Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 7737126, tölvupóstur elinrosa@gimli.is eða Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 6594044, tölvupóstur halla@gimli.is.

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?

Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...

Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.

Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?

Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Kort af Holtsvegur 43

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50