HÚSASJÁ

Holtsvegur 43

01-0102 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

80 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2018

Byggingarár

1511 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



641 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

942.138 kr/m²

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Holtsvegur 43 í 210 Garðabæ er falleg og björt 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu lyftuhúsi með sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er samtals 79,5 ferm þar af er geymsla 8,7 ferm. Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi, þvottaherbergi innaf baðherbergi og rúmgóðar 16 ferm lokaðar suðursvalir. Sér geymsla í sameign sem hefur verið breyt í auka herbergi og er á sömu hæð og íbúðin. Hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð ásamt dekkjageymslu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir:

Ásgeir Þór Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 7720102 eða í tölvupósti asgeir@allt.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Er flísalögð með fataskáp

Eldhús: Opið eldhús með góðri viðarinnréttingu, steinborðplötu og ofn í vinnuhæð. Parket á gólfum.

Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgang út á stórar suðursvalir með svalaskjóli.

Svefnherbegi: Með góðum fataskáp og parket á gólfi.

Baðherbergi: Með snyrtilegri viðarinnréttingu, flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturtu og upphengt salerni. Innaf baðherbergi er þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Svalir: 16 fm rúmgóðar svalir með

Geymsla: Sér geymsla með glugga er í sameign og sömu hæð, sem búið er að breyta í frístundarherbegi.

Sameign: Í sameign á jarðhæð er hjóla/vagna-geymsla og dekkjageymsla

Bílastæði: Sér bílastæði er í bílageymslu. Lagt hefur verið fyrir hleðslustöðvum í bílgeymslunni....ATH hleðslustöð fylgir ekki þessu bílastæði.

Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign og þaksvalir.

Íbúðin er einstaklega vel staðsett á fjölskylduvænum stað í Urriðaholtinu þar sem stutt er í góðar gönguleiðir við vatn og náttúru, sem og golfvelli og aðra útivist.

Stutt í helstu verslanir og þjónustu eins og Costco, Bónus og Ikea.

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Kort af Holtsvegur 43

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37