HÚSASJÁ

Bríetartún 11

05-0207 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

123 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2018

Byggingarár

28698 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



82 dagar á sölu

sell

113.900.000 kr

926.770 kr/m²

SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: Glæsileg, 122,9 fm, þriggja herbergja íbúð á annarri hæð við Bríetartún 11, Rvk. Eignin skiptist í anddyri og gang, alrými með eldhúsi og stofu, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, barnaherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í sameign. Gólfhiti í íbúð og svalalokun á svölum til suðausturs. Sérsmíðaðar innréttingar frá SCHMIDT.  Parket á gólfum og flísar á votrýmum. Geymsla í sameign.

Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is

Nánari lýsing: Þriggja herbergja, 122,9 fm íbúð sem skiptist í anddyri með góðu skápaplássi, eldhús og stofu í alrými, Eldhús er með hvítri innréttingu og viðarlitaðri eyju með hvítum skúffum, spanhelluborð, ofn í vinnuhæð, háfur yfir eldavél og innbyggð uppvottavél. Aðgengi út á svalir með svalalokun til suðausturs út frá stofu/eldhúsi. Hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi með hvítri skúffueiningu undir vaski, upphengdu salerni með innbyggðum klósettkassa og sturtu, svefnherbergi með skáp, baðherbergi með hvítri innréttingu, upphengdu salerni og innbyggðum klósettkassa, baðkari og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.  Gólfefni ibúðar eru parket og flísar á baðherbergjum.

SEM HLUTI AF MIÐBORG REYKJAVÍKUR KEMUR HÖFÐATORG TIL MÓTS VIÐ ÞÁ SEM VILJA BÚA MIÐSVÆÐIS Í NÝLEGU OG VÖNDUÐU HÚSNÆÐI. HÖFÐATORG ER FYRIR ÞÁ SEM VELJA ÞANN LÍFSSTÍL AÐ BÚA Í MIÐBORG, VILJA EKKI FARA LANGAR LEIÐIR TIL AÐ SÆKJA VEITINGASTAÐI OG/EÐA VERSLANIR OG HAFA ÁNÆGJU AF IÐANDI MANNLÍFI.

UM LEIÐ KEMUR HÖFÐATORG TIL MÓTS VIÐ ÞÁ SEM VILJA AÐEINS ÞAÐ BESTA SEM NÚTÍMA BYGGINGARLIST HEFUR AÐ BJÓÐA.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Fasteignasalan TORG kynnir eignina Snorrabraut 85, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01, fastanúmer 252-3790 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Kort af Bríetartún 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41