HÚSASJÁ

Lynggata 2

01-0001 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

93 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2017

Byggingarár

2591 m²

Lóð

Lyfta

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús



156 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

844.754 kr/m²

**Stæði í bílgeymslu**

Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali og Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í einkasölu:

Lynggata 2, 210 Garðabær

Vönduð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í Urriðaholti.

Vönduð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýlishúsi í vinsæla hverfinu Urriðaholti. Íbúðin er 93,4 m² að stærð samkvæmt HMS, þar af 7,1 m² geymsla, og fylgir henni stæði í bílageymslu.

Fasteignamat 2026: 80.650.000 kr.

Helstu kostir eignarinnar:

- 2 svefnherbergi

- Jarðhæð með útgengi

- Sólrík hellulögð verönd

- Stutt í leikvöll

- Sér geymsla og bílastæði í bílageymslu

- Vandaðar innréttingar frá GKS

- Nýlegt og vel skipulagt fjölbýli

Skipulag:

Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalagt gólf og tvöfaldur fataskápur

Alrými: Stofa og eldhús í sameiginlegu rými, útgengt á sólrikka verönd

Eldhús: L-laga innrétting með brúnni neðri og hvítri efri innréttingu, svartur vaskur, keramik helluborð, ofn, innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél

Hjónaherbergi: Rúmgott með sexföldum fataskáp

Herbergi II: Tvöfaldur fataskápur

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, walk-in sturta, handklæðaofn og vifta

Þvottahús: Stálvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara

Gólfefni:

Fljótandi parket í alrými og herbergjum, flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.

Sameign:

Sér geymsla á geymslugangi, hjóla- og vagnageymsla og bílastæði í bílageymslu.

Samkvæmt eignaskiptasamningi:

Eignin er á jarðhæð, birt stærð 86,3m², ásamt geymslu 0020; birt stærð 7,1m². Eigninni tilheyrir hlutdeild í matshluta 01 og lóð samkvæmt hlutfallstölu. Birt stærð séreignar matshluta 01: 93,4m². Hlutfallstala í matshluta 01 og lóð 2,75% Hlutfallstala í hitakostnaði 3,07%

Lynggata 2 er steinsteypt íbúðarhúsnæði og bílageymsla, jarðhæð og fjórar hæðir með láréttu/einhalla dúkklæddu timburþaki.

Urriðaholt:

Urriðaholt er vistvottað og fjölskylduvænt hverfi þar sem áhersla er lögð á öryggi og lífsgæði. Leikvöllur er staðsettur við hlið hússins og stutt er í útivist, gönguleiðir, þjónustu og friðlandið í Heiðmörk, Búrfellshraun og Urriðavatn.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasali í síma 858-9494 eða ragna@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Lynggata 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu