HÚSASJÁ

Skyggnisbraut 6

04-0401 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

107 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2016

Byggingarár

3158 m²

Lóð

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



296 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

700.655 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð (þrjú svefnherb.) á fjórðu hæð við Skyggnisbraut 6 í Úlfarsárdal, með bílastæði í bílageymslu og þvottahús innan íbúðar.

Íbúðin er skráð samtals 106,90 fermetrar skv. Þjóðskrá Íslands.

Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi meðtengi fyrir þvottavél, og geymslu innan íbúðar.

Þá er einnig sérmerkt bílastæði í bílakjallara og aðgangur að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Nánari lýsing:

Anddyri: Harðparket á gólfi og rúmgóður fataskápur.

Eldhús: Falleg HTH innrétting í L-lagi með flísum á milli skápa og lýsingu undir efri skápum. Eldhústæki frá AEG; spanhelluborð, bakaraofn í vinnuhæð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhús opnast inn í stofu og borðstofu.

Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með harðparketi á gólfi og útgengi á suðursvalir.

Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum. Myrkvunargardínur fylgja.

Svefnherbergi I og II: Bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og fataskápum. Myrkvunargardínur fylgja.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu, glerþili og upphengdu salerni. Innrétting og efri skápur við vask. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útloftun er úr rýminu.

Geymsla: Er innan íbúðar, við anddyri. Harðparket á gólfi.

Annað:

Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni.

Gluggatjöld fylgja, skreen í stofu og myrkvunargardínur í svefnherbergjum.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á fyrstu hæð.

Möguleiki á hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Húsið er byggt árið 2016 og steinað að utan með fallega frágenginni lóð.

Sameign er snyrtileg, flísalögð í forstofu og teppi á stigagangi.

Um er að ræða vel skipulagða eign í fjölskylduvænu og vinsælu hverfi í Úlfarsárdal þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Fram og alla helstu þjónustu.

Þá er náttúran í næsta nágrenni með frábærum göngu- og hjólaleiðum um Úlfarsfell og nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / sími 450-0000

Langar þig að láta skoða möguleika á sölu á þinni eign ?

Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Skyggnisbraut 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð