HÚSASJÁ

Friggjarbrunnur 53

01-0103 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

72 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2016

Byggingarár

3158 m²

Lóð

Lyfta

Geymsla



5 dagar á sölu

sell

65.900.000 kr

920.391 kr/m²

Fasteignasalan Torg Kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 2-3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi að Friggjarbrunni 53 Úlfarsárdal. Innréttingar og skápar eru vandaðar frá HTH. Eignin er skráð 71,6 fm. og skiptist í anddyri/gang, eldhús, rúmgóða stofu með borðstofuplássi, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Eitt af svefnherbergjum eignarinnar er skráð sem geymsla en eigendur hagnýta herbergið sem svefnherbergi. Þetta er einstaklega falleg eign með 6,3 fm. svölum og góðu útsýni. Stutt er á golfvöll og náttúruna allt í kring.

Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is

Nánari lýsing:

Anddyri/gangur: Gengið er inn í rúmgott anddyri með háum fataskápum. Harðparket flæðir yfir öll rými íbúðar nema baðherbergi.

Eldhús: Eldhúsið er vel útbúið með vandaðri innréttingu frá Danska framleiðandanum HTH. Ljúflokun á skápum, dökk borðplata og flísar á milli efri og neðri skápa. AEG bakarofn, helluborð, gufugleypir og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi með opnanlegu fagi.

Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru rúmgóðar og bjartar í samliggjandi rými með harðparketi á gólfi. Gengið er út á svalir frá stofu.

Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er mjög rúmgott með háum fataskáp og harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er herbergi sem skráð er sem geymsla en núverandi eigendur hagnýta sem svefnherbergi. Herbergið er með fataskáp, glugga með opnanlegu fagi og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Falleg viðar innrétting með ljúflokun og dökkri borðplötu.

Upphengt salerni, sturta með hertu gleri, nýleg innrrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Innan íbúðar er herbergi sem skráð er sem geymsla. Einnig fylgir sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Um er að ræða sérlega fallega eign á góðum stað í Úlfarsárdal þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, golfvöll, nýja hverfismiðstöð og sundlaug, skóla og leikskóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is

Kort af Friggjarbrunnur 53

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð