HÚSASJÁ

Tryggvagata 13

01-0302 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

111 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2017

Byggingarár

842 m²

Lóð

Svalir

Lyfta

Geymsla



537 dagar á sölu

sell

105.500.000 kr

948.741 kr/m²

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu  fallega og glæsilega íbúð á 3. hæð með aukinni lofthæð í hjarta miðborgarinnar við Tryggvagötu í Reykjavík.  Eignin er í vönduðu lyftuhúsi sem var byggt 2017 og er hún öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og á milli hæða og íbúða. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins. Íbúar geta sótt um íbúakort bílastæðasjóðs fyrir ca. 3.000 kr. á mánuði, sem veitir aðgang að bílastæðum víða í miðbænum og nágrenni heimilis.

Hiti er í öllum gólfum. Free@home stýrikerfi fyrir ljós og myndavéladyrasíma. Snertilaust lyklaaðgengi í allar íbúðir, sameignarrými og útihurðir. Eignin getur verið laus fljótt.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.      Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign

Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 111,2fm. og þar af er geymsla 2,2fm.

Nánari lýsing:

Anddyri með góðum fataskáp frá HTH og parket á gólfi.

Eldhús er samliggjandi stofurýmum og skiptir því skemmtilega upp, stór eyja með spanhelluborði, fallegar viðar borðplötur, innréttingar frá HTH, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Parket á gólfi.

Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er út á suðursvalir.

Sjónvarpsstofa norðanmegin við eldhús með parket á gólfi.

Baðherbergi með góðri innréttingu, upphengdu salerni, walk-in sturtu og flísar á gólfi og að hluta til á veggjum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.

Hjónaherbergi bjart með gólfsíðum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er út á norðursvalir úr herberginu.

Fataherbergi er inn af hjónaherbergi með parket á gólfi.

Baðherbergi er innaf fataherbergi með upphengdu salerni, baðkari með sturtu og flísar á gólfi og að hluta til á veggjum.

Svefnherbergi II bjart og rúmgott, fataskápur frá HTH, gólfsíðir gluggar og parket á gólfi.

Geymsla er í sameign í kjallara

Dagnotkunar hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúðir. Einstaklega glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum.

Eignin er miðsvæðis og göngufæri í alla þá skemmtilegu afþreyingu, veitingastaði og kaffihús sem miðbærinn, Grandinn og gamli Vesturbærinn hafa upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Tryggvagata 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð