HÚSASJÁ

Kópavogstún 5

02-0403 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

66 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2016

Byggingarár

4421 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr



168 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

1.159.879 kr/m²

Fasteignaval ehf. kynnir fjölbýlishús í 200, Kópavogsbær

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Fasteignaval / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Glæsilega 66,3m2 íbúð, ásamt bílastæði í bílastæðahúsi, á fjórðu hæð við Kópavogstún 5, 200 Kópavogur.

Forstofa er með fataskáp. Eldhús er með spónlagðri innréttingu og góðum tækjum. Eldhús er í einu opnu rými með stofu. Stofan er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt út á svalir með glerlokun. Svalir snúa í suð-vesturs, með fallegu útsýni. Hjónaherbergi er með góðum fataskáp. Parket er á gólfum íbúðarinnar. Baðherbergi er rúmgott með ljósri innréttingu, sturtu með glerlokun og flísalagt gólf og veggi. Innná baðherbergi er einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, gott skápapláss. Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt hjólageymslu.

Bjartur og fallegur samkomusalur er á jarðhæð þar sem aðstaða er fyrir íbúa hússins til koma saman og er salurinn einnig notaður fyrir ýmiskonar uppákomur.

Bílastæði er í bílastæðahúsi.

Húsið er góðum og fallegum stað þar sem stutt er fallegar gönguleiðir, sundlaug og verslun.

Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Húsið er fyrir 60 ára og eldri.

Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 777 56 56 / 517 26 00. gunnlaugur@fasteignaval.is og á heimasíðu okkar www.fasteignaval.is

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.

Nánari upplýsingar í síma 517-2600 eða gunnlaugur@fasteignaval.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kort af Kópavogstún 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30
Kópavogstún 5, 02-0403 | Húsasjá