HÚSASJÁ

Naustabryggja 17

01-0404 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
55 myndir

132 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2017

Byggingarár

8863 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



56 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

759.696 kr/m²

***EIGNIN ER SELD, ER MEÐ KAUPENDUR Á SKRÁ SEM ERU AÐ LEITA AÐ SAMBÆRILEGU HÚSNÆÐI. HAFÐU SAMNBAND Í SÍMA: 820-9322***

Páll Konráð & LIND fasteignasala kynna stórglæsilega og nýlega 4ra herbergja endaíbúð með mikilli lofthæð á 4. hæð (efstu hæð) í nýlegu lyftuhúsi við Naustabryggju 17 í Bryggjuhverfinu við Gullinbrú.

Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi þar á meðal rúmgóð hjónasvíta, tvö baðherbergi og sér þvottahús. Bílastæði fylgir í bílakjallara.

Eignin er í heildina skráð 131,5 fm á stærð sem skiptist í 119,6 fm íbúð og 11,9 fm geymslu.

Íbúðin er að hluta til á tveimur hæðum. Neðri hæðin skiptist í forstofu / gang, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Efri hæðin skiptist í vinnurými og hjónasvítu með baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara og vel staðsett stæði í bílakjallara, með möguleika á rafhleðslu fyrir rafmagnsbíl. Búið er að tengja rafmagn við bílastæðið og setja upp grind fyrir rafhleðslustöð.

-//- Mikil lofthæð

-//- Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi

-//- Innréttingar frá GKS innréttingum

-//- Stæði í bílakjallara

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Forstofa / gangur: með fataskáp og parketi á gólfi.

Þvottahús: með þvottasnúrum, flísar á gólfi.

Svefnherbergi 1: 14,5 fm svefnherbergi með fataherbergi og parketi á gólfi.

Svefnherbergi 2: 10,1 fm svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.

Stofa: í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð, parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar og útgengi á svalir sem snúa í suð-austur.

Eldhús: með ljósri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, góðu borðplássi og parketi á gólfi.

Baðherbergi: með innréttingu og efri skápum með speglum, sturtu, handklæðaofn og flísum á gólfi.

Efri hæð:

Hjónasvíta: 29,8 fm hjónasvíta með mikilli lofthæð, fataherbergi og baðherbergi með sturtu og flísum á gólfi.

Vinnurými: vinnurými(stigapallur) fyrir framan hjónasvítuna með parketi á gólfi.

Bílastæði: sérbílastæði í bílageymslu merkt 404. Vel staðsett í bílakjallara, rétt hjá inngangi í stigagang og lyftu.

Geymsla: 11,9 fm sérgeymsla í kjallara.

Hjóla - og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.

Húsið var byggt af ÞG Verk árið 2017 og er því um nýlega eign að ræða. Íbúðin lítur vel út með mikilli lofthæð í stofu, eldhúsi og hjónasvítu. Húsið er klætt að utan með vönduðum ál- og tréklæðingum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Innréttingar frá GKS innréttingum. Harðparket og flísar á gólfum.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Naustabryggja 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55