Sóltún 3
03-0106 · 105 Reykjavík



131 dagar á sölu
89.900.000 kr
934.511 kr/m²
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur faseignasali kynnir bjarta og fallega 3. herbergja 96,2 m2 íbúð á jarðhæð í nýlegu og vönduðu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri að Sóltúni 3 í Reykjavík. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Verönd til suð-vesturs. Sérinngangur af svölum er inn í íbúðina. Íbúðin er vel skipulögð og vönduð með fallegum innréttingum. Íbúðin er skráð hjá HMS 88,4 fermetrar ásamt 7,8 m2 geymslu
Nánari lýsing:
Forstofan er með flísalögðu gólfi og innbyggðum fataskáp.
Eldhúsið er opið inn í stofu með eikar innréttingu með hvítum sprautulökkuðum skápum. Silestone steinn á borðum. Innbyggður kæliskápur og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, stál bakaraofn og keramik helluborð.
Stofa/borðstofa með gluggum til suðvesturs. Stofa er opin við eldhús og með útgengi út á verönd.
Hjónaherbergi með harðparket á gólfi og innbyggðum fataskápum á heilum vegg.
Svefnherbergi er innaf stofu með harðparketi á gólfi og fataskáp, rennihurð skilur af rýmið.
Baðherbergið er flísalagt í hólfi og gólf með walk-in sturta með glerþili og upphengt salerni. Falleg innrétting við vask með Silestone stein á borði. Rými fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, handklæðaofn.
Geymsla með máluðu gólfi .
Bílastæði: Sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
Þjónusta:
Sóltún öldrunarþjónusta ehf. (Sóltún Heima) veitir 10% afslátt af heimaþjónustu fyrir íbúa þessarar íbúðar.
Hjúkrunarheimilið Sóltún er handan götunnar. og þar er hægt að fá mat í hádeginu á virkum dögum. Þar er einnig hægt að fá tíma á hárgreiðslustofu og fótaaðgerðastofu. Á hjúkrunarheimilinu er líka sjúkraþjálfun.
Húsið er byggt árið 2016, einangrað að utan, álklætt/viðarklætt og viðhaldslítið. Lóðin er snyrtileg og snjóbræðsla er fyrir framan húsið. Góð bílastæði eru við húsið. Um er að ræða eftirsótta staðsetningu miðsvæðis í Reykjavík og í göngufæri við alla verslun og þjónustu. Stutt er í útivistaperlu í Laugardalnum.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

































