HÚSASJÁ

Vallakór 6B

02-0101 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

69 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2018

Byggingarár

3828 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr



26 dagar á sölu

sell

65.500.000 kr

942.446 kr/m²

Sólveig Regína Biard lgf. og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á frábærum stað í Kórahverfi. Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara. Þvotta aðstaða í bílakjallara. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Eignin getur verið laus við kaupsamning

Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 69,5 fm.

Nánari upplýsingar hjá Sólveigu í síma 869-4879 eða á solveig@trausti.is

Nánar um eignina:

Anddyri með góðum skáp. flísar á gólfi.

Eldhús og stofa mynda sameiginlegt rými.

Eldhús með eldri hvítri innréttingu. Helluborð og háfur. Tengi fyrir uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.

Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi.

Gengið er út á hellulagða afgirta verönd úr eldhúsi/stofu

Hjónaherbergi með stórum og góðum skáp. Parket á gólfi.

Rúmgott baðherbergi með glugga. Snyrtileg innrétting. Tengi fyrir þvottavél. Walk-in sturta. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf.

Sérgeymsla í sameign.

Vagna- og hjólageymsla í sameign.

Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara.

Um er að ræða glæsilega og bjarta íbúð í þessu skemmtilega hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu. Tilvalin fyrstu kaup.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína Biard, löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu solveig@trausti.is Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Vallakór 6B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð