HÚSASJÁ

Sóleyjarimi 13

01-0201 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

143 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2015

Byggingarár

3589 m²

Lóð

Sérinngangur

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



336 dagar á sölu

sell

109.900.000 kr

767.458 kr/m²

Nýtt á skrá! Sóleyjarimi 13 í Reykjavík

--- Glæsileg 143,2 fermetra endaíbúð með þrennum svölum, tveimur baðherbergjum, fataherbergi og sérinngangi ---

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja 143,2 fermetra endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi í virkilega fallegu húsi frá árinu 2015. Íbúðin er virkilega björt og sjarmerandi með gluggum á þrjá vegu og þrennum svölum til suðvesturs, norðurs og austurs. Eldhúsið er afar glæsilegt með sérsmíðuðum innréttingum frá Hegas, steini á borðum og stórri eldhúseyju sem myndar skemmtilega miðju íbúðarinnar. Gólfhiti er í allri íbúðinni og innfeld ljós í loftum að hluta.

Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi I, stórt alrými þar sem stofurými er opið við eldhús, þvottaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi II, fataherbergi og svefnherbergi II. Sérmerkt stæði er fyrir framan inngang og sérgeymsla í sameign hússins og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Hiti er í útitröppum og eru komnir rafhleðslustöðvar á sameiginlegum bílastæðum hússins. Um er að ræða 10 íbúðir í þessum kjarna sem hafa um að ráða 21 bílastæðum (tvö bílastæði með snjóbræðslu fyrir hreyfihamlaða).

Nánari lýsing eignar:

Sérinngangur er í íbúð.

Forstofa: Með flísum á gólfi, gólfsíðum glugga sem hleypir inn mikilli birtu og innbyggðum fataskáp sem nær upp í loft.

Baðherbergi I: Er staðsett inn af forstofu með flísum á gólfi og veggjum í loft. Flísalögð sturta með glerþili, fallegri innréttingu við vask og upphengdu salerni.

Alrými: Er mjög rúmgott og skiptist í setustofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhús. Alrými er bjart með góðum gluggum til suðvesturs og norðurs. Falleg harðparket á gólfum og innfelld lýsing að hluta. Útgengi á tvennar svalir frá alrými.

Svalir I: Snúa til suðvesturs.

Svalir II: Snúa til norðurs út frá borðstofu.

Eldhús: Er afar fallegt með sérsmíðuðum innréttingum sem ná upp í loft frá Hegas, steini á borðum og harðparketi á gólfi. Stál bakaraofn, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur, nýtt spansuðu helluborð og eyju háfur fyrir ofan.

Þvottaherbergi: er staðsett inn af eldhúsi og er mjög rúmgott. Ljósar innréttingar þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð. Þvottaherbergi nýtist einnig vel sem geymsla/búr.

Hjónaherbergi: Með fallegu harðparketi á gólfi og glugga til austurs. Gengið er inn í fataherbergi og baðherbergi II frá hjónaherbergi. Útgengi á svalir II.

Fataherbergi: Með harðparketi á gólfi og góðum sérsmíðuðum innréttingum.

Baðherbergi II: Er staðsett inn af hjónaherbergi með flísum á gólfi og veggjum í loft. Flísalögð sturta með gleriþili, fallegri innréttingu við vask, handklæðaofni og upphengdu salerni.

Svefnherbergi II: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðum klæðaskápum sem ná upp í loft og gluggum til norðurs og austurs.

Svalir III: Snúa til norðausturs.

Sérgeymsla: Er staðsett í sameign hússins og er 7,9 fermetrar að stærð.

Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.

Hús að utan: Lítur vel út og virðist vera í góðu ásigkomulagi af sjónskoðun. Allt húsið og svalir var málað árið 2025.

Lóð: Er tyrfð og með steyptri stétt að húsi.

Staðsetning: Er afar góð á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Stutt í fallegar hjóla- og gönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Kort af Sóleyjarimi 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu