HÚSASJÁ

Garðatorg 2B

01-0205 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

143 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2016

Byggingarár

2090 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



231 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

1.011.165 kr/m²

DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;

LÆKKAÐ VERÐ!

Stórglæsileg LÚXUS íbúð með einstöku útsýni á annari hæð í Garðatorgi 2B ( íbúð 205 )

Íbúðin er LAUS VIÐ KAUPSAMNING

Öll helsta þjónusta er í göngufæri á Garðatorgi, M.a verslanir, matsölustaðir, efnalaug og fl.

* Stórir gluggar eru í allri íbúðinni og hærra er til lofts en gengur og gerist.

* Glæsilegt eldhús með stein á borðum og veglegri eyju

* Hjónasvíta með sér baðherbergi með sturtu

* Sjónvarpshol sem má með lítilli fyrirhöfn breyta í svefnherbergi nr 3.

* Grill svalir með svalalokun eru við hlið eldhússins

* Rúmgóður sólpallur & Grillsvalir við eldhús

* Glæsilegar innréttingar úr reyklitaðri EIK frá GKS

* Gegnheilt parker er á alrými eignarinnar

* 2 Lyftur eru í húsinu

Lýsing eignar;

Gengið er inn í andyri með þvottahús á vinstri hönd, þvottahúsið er með ljósri innréttingu, vaskur er í þvottahúsi og flísar á gólfi.

Rúmgóðir skápar. Sérlega rúmgóð stofa / eldhús eru í opnu rými. Gegnheilt parket er á gólfum íbúðar að frátöldu votrými.

Eldhúsið er hið glæsilegasta, reyklituð eik og svartur steinn á borðum. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja.

Stór gólfsíður gluggi setur punktinn yfir i-ið á milli eldhússins og stofunnar, en einstakt útsýni er yfir Garðabæinn og yfir Bessastaði.

Stofan er sérlega björt og rúmgóð, gluggar eru á 2 hliðum, útgengt er á timbur verönd.

Hjónasvíta með sérbaðherbergi með sturtu, upphendu salerni og fallegri innréttingu ásamt speglakáp. Stór fataskápur með rennihurðum er í hjónaherbergi.

Aðal baðherbergi er flísalagt með walk in sturtu og upphengdu salerni, innréttingin er í sama stíl og aðrar innréttingar í húsinu ásamt stein á borði. Veglegur speglaskápur með led ljósum er fyrir ofan vaskinn.

Barnaherbergi með skáp

Sjónvarpsstofa, sem auðveldlega má breyta í fallega skrifstofu eða herbergi nr 3.

Hér er á ferðinni sannkölluð lúxuseign á besta stað í borginni með frábæru útsýni.

Íbúðin sjálf er skráð 135,1 fm og geymslan í sameign er 8,2 fm. Bílastæðið er ekki skráð inn í fm tölu eignarinnar.

Sameignin er sérlega snyrtileg, sér stæði í bílakjallara fylgi íbúðinni, raflagnir eru komnar fyrir hleðslustöð. en íbúðin sjálf er 143,3 fm, þar af 8,2 fm geymsla í sameign.

Hússjóðurinn stendur vel

Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali

Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á steinunn@dixon.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Garðatorg 2B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Garðatorg 2B, 01-0205 | Húsasjá