Grandavegur 42A
01-0202 · 107 Reykjavík



121 dagar á sölu
74.900.000 kr
971.466 kr/m²
Nýtt á skrá! Grandavegur 42A Reykjavík - Opið hús laugardaginn 14. febrúar kl. 13:00-13:30.
Lind fasteignasala kynnir virkilega glæsilega og vel skipulagða 77,1 fermetra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Grandaveg 42A í Reykjavík. Íbúðinni fylgir sérstæði í bílakjallara. Rúmgóðar svalir með svalalokun sem snúa inn í bakgarð hússins. Stofa er rúmgóð og opin við eldhús.
Öll sameign er til fyrirmyndar, snyrtileg með eftirlitsmyndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími er í húsinu. Flísar á sameiginlegu anddyri og teppi á stigapöllum. Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús og snjóbræðslu. Bílakjallari og geymslugangar eru afar snyrtilegir. 18 gestastæði eru staðsett í bílakjallara.
Frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla verslun og þjónustu (t.d. Hagkaup Seltjarnarnes og verslanir út á Granda). Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Íþróttasvæði KR og Vesturbæjarsundlaug í næsta nágrenni. Stutt í alla verslun og menningu sem miðbærinn og nágrenni hafa upp á að bjóða.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum.
Eldhús: Er rúmgott og með harðparketi á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með dökkum neðri skápum og hvítum efri skápum. Kvartz steinn á borðum.Tveir stál AEG ofnar, AEG helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Eldhús er opið við stofu.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Stofa er opin við eldhús og rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Eru rúmgóðar með flísum á svalagólfi og opnanlegri svalalokun.
Svefnherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og handklæðaofn. Falleg innrétting við vask með kvartz steini á borði og upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn í skáp inn af baðherbergi og vaskur.
Sérstæði í bílageymslu: Er staðsett í snyrtilegum bílakjallara. 18 gestastæði eru í bílakjallara.
Sérgeymsla: Er staðsett á jarðhæð. Málað gólf, rafmagnstengill og útloftun.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg á jarðhæð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali í síma 847-8584 / tara@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



























