HÚSASJÁ

Lindargata 28

01-0102 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

51 m²

Stærð

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2016

Byggingarár

921 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



94 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

1.072.266 kr/m²

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu rúmgóða 2ja herbergja íbúð með sérinngang og 19,5 fm sérafnotarétti eða timburpalli til suðurs í nýlegu lyftuhúsi við Lindargötu í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Birt stærð eignar er 51.2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 6 fm geymsla.

Eignin skiptist í forrými, bjart alrými með eldhúsi og stofu, svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir geymsla í kjallara og hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymslu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi, flísar á gólfi.

Eldhús með ljósri innréttingu og innbyggðum tækjum sem fylgja, kæliskáp og uppþvottavél.

Stofa, rúmgóð og björt, útgengt á 19,5 fm sérafnotarétt með timurpalli til suðurs.

Svefnherbergi með fataskáp.

Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með  upphengdu salerni, innréttingu og walk-in sturtu.

Geymsla (6 fm), sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Gólfefni íbúðar er harðpaket og flísar á votrýmum, forstofu og baðherbergi. Innréttingar sérsmíðaðar frá GKS og innihurðar hvítar yfirfelldar.

Húsgjöld íbúðar eru 20.103 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn sem og allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Kort af Lindargata 28

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu