HÚSASJÁ

Árhraunsgata 2

01-0101 · 804 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

62 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2014

Byggingarár

12000 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



188 dagar á sölu

sell

44.900.000 kr

713.831 kr/m²

RE/MAX og Ingi Þór Löggiltur fasteignasali kynna:  Árhraunsgata 2, 804, Selfossi,

62,9fm, vandað heilsárshús með aukinni lofthæð á 12000,0 m² eignarlóð sem vaxin er villtum gróðri að mestu,

Eign skiptist í: Forstofu, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús& stofu í samliggjandi rými, geymslu og geymsluskúr á lóð.

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með harðparketi á gólfi og ágætum fataskápum.  Svefnherbergi eru tvö, annað með tvöföldu rúmi og efri koju fyrir ofan og harðparketi á gólfi og er í dag nýtt sem gesta og sjónvarpsherbergi. Hjónaherbergi er með harðparketi á gólfi og ágætum fataskáp.

Baðherbergi er með dúk á gólfi, frístandandi sturtuklefa, vaskainnréttingu og spegli.

Eldhús og stofa eru í sérlega björtu rými með aukinni lofthæð og út gengt er úr stofu út á verönd sem nær nánast í kringum húsið.  Eldhús er með hvítri innréttingu með viðar könntum, efri og neðri skápum, sambyggðri eldavél og tengi fyrir uppþvottavél.

Harðparket er á gólfi í rýminu.  Geymsla með sérinngang er við aðal inngang í húsið og þar er tengi fyrir þvottavél ásamt ágætu geymsluplássi.  Geymsluskúr á á grasi vöxnum bala rétt við húsið.  Húsið er með báru og viðarklæðningu, ágætri viðarverönd með skjólveggjum að hluta.

Lóðin sem er 12000,0 m er að mestu vaxin viltum gróðri utan vel hirts grasbala við húsið.  Þægileg aðkoma er að húsinu þar sem mokað er reglulega upp að hliði.

Húsið er kynnt með rafmagni en hitaveita er til staðar á svæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Ingi Þór Löggiltur fasteignasali: ingi@remax.is/698-4450

Kort af Árhraunsgata 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð