HÚSASJÁ

Skipholt 11

01-0305 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

82 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1968

Byggingarár

2147 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



265 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

855.569 kr/m²

SKIPHOLT 11-13 - BJÖRT OG FALLEG CA 82 FM ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í FJÖLBÝSLIHÚSI MEÐ LYFTU MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK - 19 FM SUÐUR SVALIR MEÐ ÚTSÝNI.

BÓKAÐU SKOÐUN.

Um er að ræða rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með lyftu. Húsið var endurbyggt frá grunni 2015 og byggt ofan á það og því er sá hluti sem íbúðin er í frá árinu 2015.

Birt stærð eignarinnar hjá HMS er 81,7 fm og þar af er geymsla skráð 7 fm.

Nýtt fasteignamat eigarinnar sem tekur gildi þann 01.01.2026 er kr. 68.800.000,-.

Komið er inn um sér inngang af svölum inn í flísalagða forstofu með fataskáp og skóskáp.

Eldhúsið sem er opið við stofu er með parketi og fallegri innréttingu með góðu skúffu og skápaplássi.

Rúmgóð stofa með parketi og útgengi út á 19 fm suður svalir sem auka mjög á lífsgæði íbúðarinnar.

Baðherbergi er flísalgt með stórum gráum flísum á gólfi og veggjum. Þar er upphengt salerni, góður sturtuklefi, innrétting og handklæðaofn. Tengt er fyrir þvottavél á baðherbergi.

Stórt svefnherbergi með parketi og fataskáp.

Á jarðhæð er góð sér geymsla með mikilli lofthæð og sameiginleg hjólageymsla.

Frábær staðsetning miðsvæðis í borginni þar sem stutt er í alla þjónustu og göngufæri er í miðbæinn og á útivistarsvæðið á Klamratúni.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Einar Guðmundsson

Lögg. fasteignasali

s. 896-8767

einar@egfasteignamidlun.is

Kort af Skipholt 11

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð