HÚSASJÁ

Ráðhústorg 3

01-0202 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

50 m²

Stærð

1

Herbergi

8

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1930

Byggingarár

175 m²

Lóð

Garður



126 dagar á sölu

sell

268.000.000 kr

896.921 kr/m²

RE/MAX fasteignasala kynnir: Fjórar íbúðir sem hafa verið notaðar undir skammtímagistingu á frábærum stað í hjarta Akureyrar.

Um er að ræða fjórar fullbúnar íbúðir með 2-4 svefnherbergjum í hverri íbúð.

Samtals birt stærð eignarinnar er 298,8 fm.

Linkur á heimasíðu: Hér

Brand, leyfi og húsbúnaður fylgir með í kaupunum.

Nánari lýsing:

Íbúðareign 0401 - F2149816 er skráð 98,0 fm samkvæmt þjóðskrá. Björt og rúmgóð íbúð með tveimur stórum svefnherbergjum með fataskáp, parketi á gólfi og svefnplássi fyrir 5-6.  Stórt eldhús með viðarinnréttingu og rúmgóðum eldhúskróki, flísar á gólfi þar sem útgengt er út á svalir sem snúa inn í portið. Rúmgóð samliggjandi stofa og borðstofa með parketi þar sem útgengt úr stofu á svalir sem snúa út á Ráðhústorg. Baðherbergi með sturtu og flísum á gólfi og veggjum að hluta og upphengdu salerni. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.

Skrifstofa 0301 - F2149815 er skráð 100,4 fm samkvæmt þjóðskrá. Björt og rúmgóð íbúð með fjórum svefnherbergjum með fataskápum og svefnplássi fyrir 8-10. Samliggjandi eldhús og stofa þar sem harðparket er á gólfum og útgengt úr stofu á svalir sem snúa inn í portið. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta og upphengdu salerni.

Gistiskáli 0202 - F2351948 er skráð 49,5 fm samkvæmt þjóðskrá. Björt og rúmgóð íbúð sem samanstendur af holi, stofu, eldhúsi, baðherbergi og tveimur svefnherbergjum. Annað svefnherbergið er rúmgott með fataskáp og er svefnpláss fyrir 4. Harðparket er á gólfi í alrými og er baðherbergið með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu og upphengdu salerni. Útgengt úr stofu á svalir sem snúa inn í portið.

Íbúðareign 0201 - F2149814 er skráð 50,9 fm samkvæmt þjóðskrá. Björt og rúmgóð íbúð sem samanstendur af holi, stofu, eldhúsi, baðherbergi og tveimur svefnherbergjum. Annað svefnherbergið er rúmgott með fataskáp og er svefnpláss fyrir 4. Harðparket er á gólfi í alrými og er baðherbergið með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu og upphengdu salerni.

Um er að ræða eign með mikil tækifæri þar sem allar íbúðirnar eru í virkum rekstri.

Hver íbúð er með sér fastanúmeri en seljast sem ein heild.

Einnig erum við með á sölulista heila stigaganga með íbúðum / herbergjum.

Rekið undir merkjum Acco Luxury Apartments

https://acco.is/acco-luxury-apartments/

Skipagata 2: 3 íbúðir

Skipagata 4: 3 íbúðir

Atvinnurými fyrir veitingastað

Rekið undir merkjum Acco Town Square Apartment

https://acco.is/acco-town-square-apartments/

Ráðhústorg 5: 4 íbúðir

Rekið undir merkjum Acco Ice Apartments

https://acco.is/ice-apartments/

Hafnarstræti 106: 3 íbúðir

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Kort af Ráðhústorg 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð