Bakkavör 1
01-0201 · 170 Seltjarnarnesi



40 dagar á sölu
169.900.000 kr
861.562 kr/m²
LANDMARK fasteignamiðlun og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s: 896-6160 / erla@landmark.is kynna:
6 herbergja 197.2 m2 íbúð í tvíbýlishúsi við í Bakkavör 1 á Seltjarnarnesi - efri hæð.
Á einstökum stað á sunnanverðu Seltjarnarnesi stendur þetta fallega heimili með óheftu sjávarútsýni til suðurs og yfir smábátahöfnina. Staðsetningin er ein sú eftirsóttasta á höfuðborgarsvæðinu, nálægð við hafið og friðsælt umhverfi.
Húsið nýtur mikillar birtu allan daginn og útsýnið setur sterkan svip á heimilið, hvort sem horft er til hafs, yfir smábátahöfnina eða Keili og Reykjanesið. Falleg og vel hirt lóð með hita í stéttum. Umhverfið er fjölskylduvænt og allt sem þarf til daglegs lífs er í göngufæri; skóli, leikskóli, sundlaug, íþróttasvæði, golfvöllur og vinsælar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna.
Hér er einstakt tækifæri til að eignast heimili á rólegum og rótgrónum stað þar sem borgarlíf og nálægð við hafið og náttúruna fara saman.
Íbúðin er á þremur hæðum
Aðalhæð:
Forstofa flísalögð með fataskápum.
Gestasalerni flísalagt.
Stofa og borðstofa björt og rúmgóð með Jatoba parketi, útgengt á suðursvalir.
Eldhús með dökkri viðarinnréttingu og Jatoba parketi.
Efri hæð:
Svefnherbergi þrjú rúmgóð svefnherbergi með plastparketi, skápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi flísalagt með góðri innréttingu og baðkari m/sturtu.
Neðri hæð:
Þvottahús flísalagt með salerni.
Herbergi tvö parketlögð herbergi, annað þeirra er nýtt sem geymsla í dag.
Útgengt er út á verönd af neðri hæð.
Hiti er sameiginlegur og skiptist 50/50 á milli íbúðanna í húsinu.
Möguleikar:
Mögulegt væri að færa þvottaaðstöðu á baðherbergi efri hæðar og útbúa íbúð með sérinngangi á neðri hæð.
Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá eiganda:
Á árunum 1999-2000 fór fram töluverð endurnýjun á eigninni. Anddyri og gestasalerni var byggt við húsið með hleðslusteini. Húsið var einangrað að utan með plasteinangrun og gluggar lagfærðir. Skipt var um pappa og járn að hluta, auk þess sem rennur og niðurföll voru endurnýjuð. Frárennslislagnir og brunnur var endurnýjað. Slökkvarar, tenglar og hitalagnir endurnýjað og parket lagt. Veggir og loft í herbergjum á efri hæð gifsklædd.
Sameiginlegur heitur pottur á verönd verður fjarlægður á kostnað seljenda.
Nánari upplýsingar um eign:
Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s. 896-6160 eða erla@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




































