HÚSASJÁ

Austurkór 34

01-0101 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

251 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

2024

Byggingarár

625 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



670 dagar á sölu

sell

135.000.000 kr

537.634 kr/m²

Valhöll kynnir til sölu einbýlihús á tveimur hæðum í Austurkór 34 á vinsælum stað í Kórahverfinu í Kópavogi. Um er að ræða steypt hús sem er skráð 251,1 fm á stærð og þar af er bílskúrinn 25,4 fm. Lóðin er 625 fm. Allt að 3m lofthæð á efri hæð. Sjónsteyptur veggur fyrir framan hús gefur fallega aðkomu að húsinu ásamt stórum og miklum gluggum.

Húsið er skemmtilega skipulagt með eldhúsi og stórum stofum á efri hæð, mikilli lofthæð, mjög stórum gluggum á framhlið hússins og með útgengi á 45 fm svalir með glæsilegu útsýni.

Nánari lýsing:

Neðri hæð hússins skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi með fataherbergi, baðherbergi, sjónvarpsstofu, þvottahús og bílskúr.

Efri hæð hússins skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, gestasalerni og hjónasvítu með baðhergi og fataherbergi.

Að framan á efri hæð eru svo 45 fm svalir og að aftan er suðurgarður. Bílastæði er fyrir þrjá bíla.

Húsið er skráð á byggingarstig 1 (byggingarleyfi) og á matsstig 4 (fokheld bygging) og verður það selt í sama ástandi og það er í dag að öllu leyti.  Kaupandi skal ráða nýjan byggingarstjóra og nýja iðnmeistara og láta fara fram stöðuúttektir.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér öll gögn um húsið mjög vel og láta skoða það af fagmanni fyrir kaup ef þeir telja þörf á.

Nánari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Austurkór 34

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35