Stakkholt 4A
04-0302 · 105 Reykjavík



443 dagar á sölu
126.900.000 kr
977.658 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@eignamidlun.is**
Mjög góð fjögurra herbergja 129,8fm íbúð á þriðju hæð með svölum til suðvestur. Gott lyftuhúsi á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur örstutt frá Hlemmi - Mathöll, verslunum, veitingastöðum, söfnum og annarri þjónustu/afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Tvö bílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu fylgja íbúðinni. Rafmagnshleðslustöð í öðru bílastæðinu.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 129,8m², flatarmál íbúðarrýmis er 118,7m² og flatarmál geymslu er 11,1m². Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Anddyri: Er rúmgott, fataskápur upp í loft, harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið við stofu, dökk innrétting, hvítir efri skápar, eyja með skúffum, helluborð og háfur, innbyggð uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Útgengt á suðvestur svalir. Fallegar innbyggðar bókahillur í stofu.
Svefnherbergi 1: Rúmgott, dökkir fataskápur upp í loft, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, dökkur fataskápur upp í loft.
Svefnherbergi 3: Harðparket á gólfi, dökkur fataskápur upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Rúmgóð sturta. innrétting, speglaskápur og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting fyrir vélar í vinnuhæð.
Húsið lítur vel út. Það er klætt viðhaldslítilli klæðningu að utan. Sameign og lóð er fullfrágengin með hellulögðum göngustígum með snjóbræðslukerfi.
Í kjallara er geymsla íbúðar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























