HÚSASJÁ

Stakkholt 2B

03-0302 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

97 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2014

Byggingarár

6548 m²

Lóð

Lyfta



33 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

877.066 kr/m²

Miklaborg kynnir: Góð og vel skipulögð 3ja herbegrja íbúð á 3. hæð í nýlegu, vönduðu fjölbylishúsi á frábærum stað við miðborg Reykjavíkur. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.

Íbúðin er á rólegum stað í göngufæri við veitingastaði og verslanir í miðbænum og í göngufæri við sundhöllina.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

STAKKHOLT 2B: Íbúð 0302: Forstofa með innbyggðum fataskáp. Eldhús sem er með keramikhelluborði, ofni í vinnuhæð og nýlegri uppþvottavél. Eldhúsið, borðstofan, stofan og forstofa mynda stórt alrými.

Gengið er úr stofu út á rúmgóðar suðursvalir með svalalokun. Skemmtilegt miðbæjarútsýni er frá svölum og til Hallgrímskirkju.

Baðherbergi er með sturtu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á baðherbergi en eikarharðparket á öðrum gólfum.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi og eru skápar i báðum.

Sér bílastæði í bílageymslu fylgir ásamt rúmgóðri ségeymslu í kjallara.

Iðandi miðbæjarmenning Reykjavíkur er í næsta nágrenni. Veitingastaðir, kaffihús, söfn og ýmis afþreying ásamt útivistarmöguleikum eru í göngufæri. Stutt ganga er til sjávar.

Húsið er byggt af ÞG verk og er mjög vandað í alla staði.

Frábær 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu á góðum stað við miðborg Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Kort af Stakkholt 2B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð