HÚSASJÁ

Holtsvegur 25

01-0501 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
60 myndir

182 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2014

Byggingarár

2427 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Hjólastólaaðgengi

Þvottahús

Heitur pottur



200 dagar á sölu

sell

189.900.000 kr

1.044.554 kr/m²

*** Aðeins einkaskoðanir í boði ***

Miklaborg kynnir í einkasölu einstaklega glæsilega "penthouseíbúð'' við Holtsveg 25 í Urriðaholti í Garðabæ. Um er að ræða 181,8 fm , bjarta og rúmgóða 5 herbergja íbúð á efstu hæð með stórglæsilegu útsýni og gluggum í allar áttir. Íbúðin er sú eina á hæðinni og nýtur því fullkomins næðis, lyftan veitir beinan aðgang inn í íbúðina sem tryggir einstakan lúxus og þægindi. Eignin samanstendur af stórglæsilegu alrými með stofu og eldhúsi í opnu og björtu skipulagi, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottaherbergi og rúmgóðri forstofu. Með íbúðinni fylgja tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara. Innanhúshönnun og lýsing íbúðarinnar er eftir Rut Káradóttur innanhúsarkítekt.

Lýsing eignar:

Lyfta opnast beint inn í íbúðina. Tvennar svalir, aðrar um 30 fermetrar að stærð með viðarklæddu gólfi, heitum potti og glerhandriði á stálprófílum og hinar um 40 fermetrar að stærð einnig með viðarklæddu gólfi og glerhandiriði á stálprófílum. Tvö sér bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgja eigninni og sérgeymsla á jarðhæð er 12,8 fermetrar að stærð. Innréttingar eru frá HTH, gólfefni eru öll frá Birgisson og eldhús- og baðtæki eru vandaðrar gerðar, innihurðir frá Birgisson eru í yfirhæð og lofthæð íbúðarinnar er yfir 3,0 metrar.  Gólfsíðir gluggar eru á stórum hluta íbúðarinnar, tvennar stórar svalir, þar af aðrar með heitum potti og útsýni frá eigninni er algjörlega einstakt.

Forstofa: mjög rúmgóð, björt og flísalögð með miklum gluggum, frábæru útsýni og útgengi á um 30 fermetra þaksvalir með heitum potti og glerhandriði á stálfprófílum.  Frá svölum nýtur einstaks útsýnis til norðurs, vesturs og suðurs.

Hol: flísalagt.

Þvottaherbergi: flísalagt og með góðum innréttingum. 

Stofa: parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum, einstöku útsýni yfir Urriðakotsvatn, að Reykjanesi, Snæfellsjökli og víðar. Úr stofu er útgengi á um 40,0 fermetra svalir til suðurs, vesturs og norðurs sem eru með þaki yfir að hluta, glerhandriði á stálprófílum og frábæru útsýni.

Eldhús: opið við stofu, parketlagt og með gluggum. Hvítar sprautulakkaðar HTH innréttingar með graníti á borðum, miklu skápaplássi, tveimur AEG ofnum, innbyggðri uppþvottavél og tvöföldum ísskáp með klakavél. Eyja með graníti á borði, spanhelluborði. Borðaðstaða er við eyju.

Gangur: parketlagður.

Baðherbergi I: stórt og með tveimur gluggum, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri. 

Barnaherbergi I: parketlagt og með fataskápum.

Barnaherbergi II: parketlagt með gluggum í tvær áttir og fataskápar.

Hjónasvíta samanstendur af:

Hjónaherbergi: stóru, parketlögðu með útgengi á stórar svalir til suðurs, vesturs og norðurs og með gluggum í tvær áttir. 

Fataherbergi: parketlagt, gluggi og miklar innréttingar.

Baðherbergi II: með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri. 

Á jarðhæð hússins eru:

Tvö sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu.  Rafhleðslustöð uppsett í öðru stæðinu og búið að leggja að hinu.

Sérgeymsla: 12,8 fermetrar að stærð, fremst á geymslugangi og með miklum hillum.

Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæðinni.

Staðsetningin er góð þar sem stutt er í Urriðaholtsskóla, sem er leik- og grunnskóli og leikskólann Urriðaból við göngufæri, ásamt verslun og veitingastaði. Að auki er stutt í útivistarperlur, golfvelli og frábærar göngu og hlaupaleiðir. 

Bókið einkaskoðun hjá:

Kristín Avon Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is

Kort af Holtsvegur 25

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu