Álfhólsvegur 22A
01-0203 · 200 Kópavogi



5 dagar á sölu
79.900.000 kr
847.296 kr/m²
Borg fasteignasala kynnir glæsilega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í Kópavogi. Aukin lofthæð er í íbúðinni, stórir gluggar og gólf parketlögð utan votrými sem eru flísalögð. Parket flæðir á milli rýma og útgengi er úr stofu út á rúmgóðar svalir. Sérgeymsla er í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í bjartan gang með fataskápum og góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með mikilli lofthæð. Góðir fataskápar sem ná hátt upp í loft. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn.
Barnaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með fataskápum. Fullkomið sem barnaherbergi eða vinnuherbergi.
Baðherbergi: Snyrtilegt og flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta með glervegg, vegghengt salerni og falleg viðarinnrétting undir handlaug. Speglaskápur með innbyggðri lýsingu.
Þvottahús: Sérlega rúmgott þvottahús innan íbúðar með vinnuborði, vaski og hilluplássi. Hér er gert ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Rýmið er það stórt að það getur einnig nýst sem geymsla.
Eldhús: Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu og vönduðum tækjum. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð og innbyggð uppþvottavél. Gluggi er yfir vaskinum.
Stofa og borðstofa: Bjart alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Stórir gólfsíðir gluggar. Úr stofu er gengið út á stórar svalir.
Svalir: Rúmgóðar og skjólsælar svalir. Nóg pláss fyrir grill og útihúsgögn.
Bílastæði: er í lokuðum bílakjallara þar sem er sameiginleg þvottaaðstaða.
Geymsla: er staðsett í sameign en þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Á lóðinni eru samtals 16 íbúðir en Álfhólsvegur 22a og 22b eru tvö hús með sameiginlegu útisvæði á milli. Aðkoma að húsi og sameign er snyrtileg og hiti er í stéttum.
Álfhólsvegurinn er miðsvæðis í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttastarf.
Nánari upplýsingar veita :
Börkur Hrafnsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is
Ingimar Ingimarsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Borg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir


























