Lækjarbrekka 10
01-0101 · 805 Selfossi



41 dagar á sölu
62.900.000 kr
758.745 kr/m²
Lækjarbrekka 10, Syðri-Brú, 805 Grímsnes-og Grafningshreppi. Sumarhús með möguleika á rekstrarleyfi sem hentar fyrir útleigu en búið er að gera breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar þannig að kaupendur geta nýtt húsið fyrir rekstur/útleigu allan ársins hring. Hitaveita, heitur pottur, glæsilegt útsýni. Í þessu húsi eru hitalagnir í gólfi. Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlíð).
Fasteignaland kynnir: Fullbúið sumarhús sem stendur á 4.477 fm eignarlóð í landi Syðri Brúar í Grímsnes-og Grafningshreppi. Húsið er 82,9 fm að stærð og var byggt árið 2019.
Húsið skiptist: Forstofa með flísum á gólfi (flísaparket) fatahengi. Hol með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Þrjú herbergi með flísum á gólfi. tvö með góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta til á veggjum, fallegri hvítri innréttingu og sturtu (walk in). Útgengi út á suður sólpall. Eldhús og stofa í sama rými með físum á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum.
Geymsla: Gengið inn af sólpalli. Flísalögð með góðu skápaplássi.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Lokað svæði (símahlið). Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er kr. 40.000 er nýtt í vegi og símahlið.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













































