HÚSASJÁ

Hofsvík 10

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

74 m²

Stærð

2023

Byggingarár

5100 m²

Lóð

Heitur pottur



601 dagar á sölu

sell

41.900.000 kr

567.751 kr/m²

Borgir fasteignasala kynnir eignina Hofsvík 10, skráð sem sumarhús í Grímsnesi nánar tiltekið í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs í um 45 mín akstursfjarlægð frá Reykjavík. Birt stærð eignar er 73.8 fm. Fastanúmer 234-4323. Húsið stendur á 5100fm leigulóð

Um er að ræða samsett einingahús á steyptum sökkli sem er framleitt af Citic Construction og er stálgrindar einingahús með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi/borðstofu/stofu, mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum.

Hiti í gólfi er frá Danfoss.

Halogen ljós eru í loftinu.

Neysluvatnslagnir og fráveitulagnir eru frá Glóra.

Pallur með góðum skjólvegg.

Öryggisgler er í öllu húsinu.

Stór og góður rafmagnspottur er út á palli og einnig 4-6 manna glæsileg gufa þar.

Húsið er sett saman af Gunnarsfell verktökum.

Studio F sá um arkitektúr og Akkur sf. sá um raflagnir.

Sjá nánari upplýsingar og byggingarlýsingu á söluyfirliti hér Söluyfrlit

​​​​​​Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna M Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, johanna@borgir.is sími 8200788

Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, bjarklind@borgir.is sími 6905123

Lóðarleigusamningur í gildi til 31.ágúst 2067 og er lóðarleiga rúmlega 134.000 kr. á ári.

Öryggishlið inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.

Sumahúsfélegsgjald er um 20.000.kr á ári.

Innfalið í því er reglulegur snjómokstur sem þýðir að hægt er að nota húsið yfir allt árið.

Hitaveita, rotþró í jörðu, góður vegur og bílastæði

​​​​​​

Stutt er í allskyns afþreyingu, útivstarsvæði og þjónustu. Á svæðinu eru t.d. sundlaug með heitum potti og eimbaði, hjólhýsastæði, æfingagolfvöllur, minigolf, sparkvöllur, leiksvæði fyrir börn og verslun sem starfrækt er að sumarlagi. Stærri golfvöllur, verslanir og margt fleira er í nokkura mínútna akstursfjarlægð.Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Kort af Hofsvík 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu