Hofsvík 2
01-0101 · 805 Selfossi



661 dagar á sölu
41.900.000 kr
567.751 kr/m²
Borgir fasteignasala kynnir eignina Hofsvík 2, skráð sem sumarhús í Grímsnesi nánar tiltekið í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs í um 45 mín akstursfjarlægð frá Reykjavík. Birt stærð eignar er 73.8 fm. Fastanúmer 234-4315
Um er að ræða samsett einingahús á steyptum sökkli sem er framleitt af Citic Construction og er stálgrindar einingahús með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi/borðstofu/stofu, mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum.
Hiti í gólfi er frá Danfoss.
Halogen ljós eru í loftinu.
Neysluvatnslagnir og fráveitulagnir eru frá Glóra.
Pallur með góðum skjólvegg.
Öryggisgler er í öllu húsinu.
Stór og góður rafmagnspottur er út á palli og einnig 4-6 manna glæsileg gufa þar. Húsið stendur á 5100fm leigulóð
Húsið er sett saman af Gunnarsfell verktökum.
Studio F sá um arkitektúr og Akkur sf. sá um raflagnir.
Sjá nánari upplýsingar og byggingarlýsingu á söluyfirliti hér Söluyfrlit
​​​​​​Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna M Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, johanna@borgir.is sími 8200788
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, bjarklind@borgir.is sími 6905123
Lóðarleigusamningur í gildi til 31.ágúst 2067 og er lóðarleiga rúmlega 134.000 kr. á ári.
Öryggishlið inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.
Sumahúsfélegsgjald er um 20.000.kr á ári.
Innfalið í því er reglulegur snjómokstur sem þýðir að hægt er að nota húsið yfir allt árið.
Hitaveita, rotþró í jörðu, góður vegur og bílastæði.
​​​​​​
Stutt er í allskyns afþreyingu, útivstarsvæði og þjónustu. Á svæðinu eru t.d. sundlaug með heitum potti og eimbaði, hjólhýsastæði, æfingagolfvöllur, minigolf, sparkvöllur, leiksvæði fyrir börn og verslun sem starfrækt er að sumarlagi. Stærri golfvöllur, verslanir og margt fleira er í nokkura mínútna akstursfjarlægð.Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
































