HÚSASJÁ

Hraunbraut 39

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
10 myndir

352 m²

Stærð

8

Herbergi

2025

Byggingarár

1292 m²

Lóð

Sérinngangur

Heitur pottur



353 dagar á sölu

sell

28.200.000 kr

80.068 kr/m²

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Grunn og teikningar húss, á einstaklega vel staðsettri byggingarlóð að Hraunbraut 39, þéttbýlinu að Borg í Grímsnesi.  Grunnurinn er undir glæsilegt 288m2 einbýlishús á tveimur hæðum auk 64m2 bílskúr.  Örstutt er á mjög skemmtilegan leikvöll sem og í sundlaug, skóla og leikskóla!

Nýlega var deiliskipulagt nýtt hverfi við Borg og hafa lóðir selst vel á því svæði og uppbygging hafin en um er að ræða einbýlis, par- og raðhúsabyggð.

** Nálgast má allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**

Vaxandi byggðakjarni er á Borg í Grímsnesi, þar er fjölþætt þjónusta fyrir heimamenn og ferðamenn, skóli, leikskóli, félagsheimili, verslun, gisting og tjaldsvæði. Á Borg er íþróttasalur og mjög góð sundlaug með gufu, rennibraut, heitum pottum og vaðlaug. Í félagsheimilinu er fjölbreytt menningarstarfsemi og viðburðir.

Á staðnum er  einnig veitingastaðurinn á Minnborgum og örstutt er á golfvellina í Kiðjabergi og í Öndverðarnesi!

Einungis er um klukkutíma akstur í Rvk og 15-20mín akstur á Selfoss.

Búið er að greiða gatnagerðargjöld og byggingarleyfisgjald. Einnig er búið að greiða fyrir rafmagnsheimtaug.

Innifalið í verði eru grunnmyndir af efri- og neðri hæð húsins og gluggateikningar.

Búið er að setja allar lagnir, plast og járn en það á eftir að steypa plötuna.  Það fór óhemju mikil vinna við gröft á lóðinni, en svo var bara steyptur grunnur, sett efni í grunninn, lagt skólp, heita og kaldavatnslagnir, einangrunarplast yfir og járngrindur ofan á það. Eina sem er bara eftir er að hella steypu yfir það og þá er sökkullinn klár.

Kaupandi þarf að útvega iðnmeistara, byggingameistara og byggingastjóra á verkið.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Kort af Hraunbraut 39

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu