HÚSASJÁ

Hraunbraut 17

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

99 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

2310 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



381 dagar á sölu

sell

63.900.000 kr

648.073 kr/m²

Nýlegt og glæsilegt 99fm 4ra herbergja endaraðhús. Opið eldhús, 3 svefnherbergi, þvottahús, geymsla, ljósastýring, gólfhiti.

Hraunbraut 17A: Nýlegt og glæsilegt endaraðhús að Hraunbraut 17, Borg í Grímsnesi, í raðhúsalengju með 5  íbúðum.  Íbúðin er fullbúin að innan sem utan, en lóð er grófjöfnuð. Birt stærð íbúðar er 98,6 fm. Innbyggð uppþvottavél í eldhúsi, gólfhiti með hitastýringu, varmaskiptir, innfelld lýsing með Plejd ljósastýringu. 

 

Íbúðin er 4ra herbergja og skiptist upp í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, geymslu, baðherbergi með sturtu, og opið rými með eldhúsi og stofu. Innfeld lýsing. Útgengt bæði í norður- og suðurgarð um svalahurðir.

Vönduð eldhúsinnrétting og skápar með innbyggðri uppþvottavél. Slitsterkt og vatnsþolið vínylparket á gólfum, og vandaðar flísar á baðherbergi. 

Baðherbergið er flísalagt með vönduðum flísum, upphengdu salerni, og innsteypt þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri. Blöndunartæki af bestu gerð.      

Gólfhiti er í öllum rýmum, með hitastýringu fyrir sérhvert svæði. Vélrænt útsog er í rakarýmum og eldhúsi.

Klæðning hússins er viðhaldslétt lituð bárujárnsklæðning.

Lóðin er grófjöfnuð með malarbílastæði. 2 bílastæði framan við hús.

 

Til hliðar við raðhúsið er glænýr leikvöllur. Leikskóli án biðlista, skóli, sundlaug, íþróttahús, líkamsrækt, og almenn þjónusta - allt í göngufæri.     

 

Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Í göngufæri er a finna sundlaug, leikskóla, grunnskóla, og þjónustu við eldri borgara. Ný verslun, bensínstöð og hleðslustöð fyrir rafbíla, líkamsræktarsalur og fleiri mannvirki eru ýmist í byggingu eða í undirbúningi. Enginn biðlisti er í leikskólann og grunnskólann, og mötuneyti sveitafélagsins sér ungviðinu fyrir hollum íslenskum þjóðarréttum. Sveitafélagið hefur ítrekað verið valið besta sveitafélag landsins í þjónustukönnunum. Svæðið er paradís fyrir útivistarfólk. Miklir atvinnumöguleikar á svæðinu tengt ferðaþjónustu og uppbyggingu.

 

Selfoss er í 15mín akstursfjarlægð, og Reykjavík í c.a. 45mín akstursfjarlægð. 

Frekari upplýsingar um svæðið og sveitafélagið má finna hér: www.gogg.is 

 

Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í síma 777-2500 eða í tölvupósti info@imirox.com. 

TilboðsgerðFinndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is

- Söluyfirlit

- Senda fyrirspurn

- Tilboðsgerð

Kort af Hraunbraut 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24