HÚSASJÁ

Mánabakki 11

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

135 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2025

Byggingarár

6754 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



202 dagar á sölu

sell

154.000.000 kr

1.139.053 kr/m²

Jason Kristinn s. 775-1515 og Betri Stofan kynna: Glæsilegt heilsárshús í byggingu við Mánabakka 11, 135,2 fermetra steypt hús í nágrenni við Grímsborgir í Þrastarskógi.

Húsið er klætt með álklæðningu að hluta og filterað og málað að hluta. Eignin er í næsta nágrenni við frábæra golfvelli í Öndverðarnesi og Kiðjabergi.

Eignin skiptist í aðalhús með útsýni út á Sogið og gestahús með tveimur svefnherbergjum.

Aðalhús: Komið inní anddyri og gert ráð fyrir fataskáp. Baðherbergi er öðru megin og þvottahús gegnt baðherbergi. Gólfhiti er í eigninni.

Alrými skiptist í stofu, borðstofu og eldhús. Arinn er í stofu með fallegu útsýni. Gólfsíðir gluggar, einstakt útsýni og staðsetning lóðar er einstök.

Í sitthvorum endunum eru svefnherbergi og innaf öðru þeirra er hægt að ganga í baðherbergið.

Gestahús: Inngangur og tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Geymslur eru tvær skv. teikningu. Möguleiki er að stækka eignina.

Húsið er hannað af ARK arkitetkum.

Húsið er með viðhaldsléttri klæðningu, náttúrulegt grastorf er á þaki.

Lóðin er frágengin við bílaplan.

Lokað svæði með fjarstýringu og einnig er hægt að hringja í hliðið til að láta opna það.  Grímsborgir, Þrastalundur, Öndverðarnes eru í nokkurra mínútna fjarlægð.

Leiðarlýsing:

Fyrsta beygja til vinstri næsta hverfi á eftir Grímsborgum Inná svæði og þar er keyrt í gegnum hlið, svo til hægri og vinstri. Þá er lóðin I enda  og liggur við árbakkann. Eignarlóð að stærðinni 6.754 fermetrar.

Húsinu er skilað í því ástandi sem það er í dag og gefur nýjum kaupanda tækifæri að velja sjálfur innréttingar og gólfefni.

Stutt til Selfoss til suðurs, eða Þingvalla til norðurs.

Allar nánari upplýsingar gefur: Jason Kristinn Ólafsson, s. 7751515  jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Mánabakki 11

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð