HÚSASJÁ

Sogsbakki 28

Lóð · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
11 myndir

6978 m²

Lóð



668 dagar á sölu

sell

15.000.000 kr

Domusnova og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:  Eignarlóðina Sogsbakki 28, Grímsnes- og Grafningshreppi.  HITAVEITA

Um er að ræða 6.978,0 fm sumarhúsalóð í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lóðin stendur í eftirstóttu hverfi í Sogsbakka í Grímsnes- og Grafningshreppi. Landið er allt kjarri vaxið.

Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu, m.a. golfvöll, veiði, sund og fleira.   Auk þess er stutt í allar helstu náttúruperlur Suðurlands og þekktra staða:  Skálholts, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins

Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð  og um  70 km til Reykjavíkur, sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni komið að lóðarmörkum.

Nánari upplýsingar veitir:

Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali soffia@domusnova.is  / sími 846-4144

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Sogsbakki 28

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð