Óðinsstígur 6
01-0101 · 805 Selfossi



698 dagar á sölu
63.900.000 kr
598.875 kr/m²
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Glæsilegt sumarhús við Óðinsstíg í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Um er ræða 106,7 fm nýtt hús með steyptri plötu (heilsárshús) á eignarlandi. Í þessu húsi er gólfhitakerfi með stýringu fyrir gólfhita (vatn í loft). Blæs lofthita um gólfin. Húsið er klætt með bandsöguðu efni og gluggar eru ál/tré. Heitur pottur. Húsið er hitað með varmadælu.
// Svefnpláss fyrir 7 manns.
// Hægt að hafa mjög góðar leigutekjur.
// Frábær staðsetning.
// Stór pallur með heitum potti.
// Stutt í alla þjónustu.
Lýsing á eign:
Forstofa: Er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Eldhúsið og stofan: Eru í sama rými með góðri lofhæð og parketi á gólfi. Útgengi úr stofu út á suð/vestur sólpall. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum.
Baðherbergið: Er flísalagt í hólf og gólf með fallegum hvítum innréttingum, þvottavél og sturtu. Útgengi út á suður sólpall.
Herbergisgangur: Er með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.
Herbergi 1: Er með parket á gólfi og fataskáp.
Herbergi 2: Er með parket á gólfi.
Stór sólpallur með skjólgirðingu og heitur pottur (rafmagnspottur).
Stórt bílastæði – einnig stæði fyrir hjólhýsi.
Stutt í þjónustu, veitingastaði, golfvelli og fjölbreytta afþreyingu í næsta nágrenni.
Þetta er einstaklega skemmtileg eign í frábæru umhverfi sem bíður upp á góða möguleika til útivistar og afslöppunar allt árið um kring.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

































