HÚSASJÁ

Dalsbrún 2

01-0101 · 810 Hveragerði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

99 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2016

Byggingarár

936 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús

Heitur pottur



103 dagar á sölu

sell

75.900.000 kr

766.667 kr/m²

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu Dalsbrún 2 í Hveragerði.

Um er að ræða fallega 99 fm raðhúsíbúð innst í botnlanga í grónu hverfi í Hveragerði.

Íbúðin er endaíbúð, þriggja herbergja, gróinn, afgirtur garður með palli og heitum potti, bílastæði er hellulagt.

Íbúðin skiptist í anddyri, rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Gengið er inn í flísalagt anddyri.

Inn af anddyri er eitt svefnherbergi.

Alrými er mjög rúmgott og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.

Úr alrýminu er gengið inn í hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Eldhús er með dökkri innréttingu og eyju sem hægt er að sitja við.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er dökk innrétting með speglaskáp.

Í þvottahúsi er mjög rúmgóð innrétting, þar er einnig lúga/stigi upp í geymslurými á háalofti.

Á öllum gólfum er parket nema í forstofu, þvottahúsi og á baðherbergi, þar eru flísar.

Innfelld ljós og gólfhitastýringar eru í flestum rýmum.

Úr alrými er gengið út á skjólgóðan timburpall með nýjum heitum potti. Hitastýring er á pottinum.

Bílastæði er hellulagt og þar hefur verið sett upp hleðslustöð.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Dalsbrún 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð